Nicorette Fruktmint (Heilsa)
2,00 mg - 210 stkNikótínlyf eru notuð sem hjálpartæki til að auðvelda fólki að hætta að reykja eða til að draga úr reykingum. Ef nikótínþörf er mikil getur verið erfitt að hætta reykingum skyndilega. Lyfin skila nikótíni hægt út í blóðið, mun hægar og í minna magni en þegar reykt er en það dugar til þess að slá á helstu fráhvarfseinkenni reykinga.
Nicorette er til í mörgum lyfjaformum. Forðaplásturinn (Invisi) skilar frá sér nikótíni jafnt og þétt. Nefúðinn og munnholsúðinn (QuickMist) eru skjótvirkustu lyfjaformin og eru ætluð þeim sem eru mjög háðir reykingum og kjósa skjót áhrif. Tyggigúmmíið (Classic, Freshmint, Fruitmint og Whitemint) er lyfjaform þar sem notandinn stjórnar sjálfur skömmtuninni. Lyfið frásogast um slímhúð í munni. Innsogslyf er eina lyfjaformið sem hjálpar þeim sem líka eru háðir vananum. Nikótínið frásogast um slímhúð í munni og jafngildir eitt rör þremur sígarettum. Tungurótartöflur (Microtab Classic) og munnsogtöflur (Cooldrops) frásogast einnig um slímhúð í munni.
Notkun:
- 2-4 mg í senn eftir þörfum allt að 24 sinnum á dag. Tyggja skal hægt og láta tyggigúmmíið liggja í munninum þess á milli.