Nicotinell Fruit (Heilsa)
2,00 mg - 204 stkHvort sem þú vilt draga úr reykingum eða hætta alveg getur Nicotinell hjálpað þér áleiðis til að verða reyklaus. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum.
Hætta skal alfarið reykingum á meðan á meðferð með Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmíi stendur. Skammta skal ákvarða út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Mælt er með 4 mg lyfjatyggigúmmíi fyrir einstaklinga með mikla nikótínþörf og fyrir þá sem ekki hefur tekist að hætta með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Í öðrum tilfellum skal nota 2 mg lyfjatyggigúmmí. Upphafsskammtur skal ákvarðaður út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Tyggja skal eitt stykki Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmí við reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stykki á sólarhring, þó ekki fleiri en 15 stykki af 4 mg lyfjatyggigúmmíi og 25 stykki af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á sólarhring. Vegna eiginleika lyfjatyggigúmmís sem lyfjaforms getur nikótínþéttni í blóði verið mismunandi á milli einstaklinga. Því skal miða tíðni skammta við einstaklingsþörf, innan uppgefinna hámarksskammta. Nicotinell tyggigúmmí er með stökkt brakandi yfirborð og er mjúkt og auðvelt að tyggja. Það er sykurlaust og fæst í 5 mismunandi bragðtegundum: Fruit, Spearmint, IceMint,
Lakrids og Mint og fæst í tveimur styrkleikum: 2 og 4 mg.
Má nota samhliða Nicotinell plástri
Notkun:
- Tyggðu þar til nikótínbragðið verður sterkt.
- Láttu tyggigúmmíið liggja við kinnina þar til bragðið minnkar.
- Endurtaktu þetta í u.þ.b. 30 mínútur.