Dymista nefúði
187,00 mcg/sk - 25 mlDymista er lyf sem notað er við ofnæmiskvefi þegar önnur lyf eru ekki talin fullnægjandi.
Lyfið inniheldur 2 virk innihaldsefni, azelastínhýdróklóríð og flútíkasónprópíónat. Azelastínhýdróklóríð er andhistamin, ofnæmislyf, sem hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það boðefni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Azelastínhýdróklóríð minnkar þar með einkenni ofnæmis eða kemur í veg fyrir það. Flútíkasónprópíónat er barksteri sem hefur öflug bólgueyðandi áhrif og dregur úr bólgum af völdum ofnæmis. Helstu einkenni ofnæmiskvefs eru nefrennsli, hnerri, stíflað nef og kláði í nefi og augum en lyfið dregur úr ofnæmiseinkennum bæði frá nefi og augum. Einkennin geta komið fram á ákveðnum árstímum og orsakast af frjókornum frá grasi eða trjám en einnig geta meðal annars dýr, rykmaurar og myglusveppir valdið ofnæmiseinkennum.
Notkun:
Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 2svar á dag (að morgni og að kvöldi). Reglugleg notkun er nauðsynleg til að ná fullum árangri.