Lyf
Desloratadine Alvogen
5,00 mg - 30 stkDeslóratadín, virka efnið í lyfinu, hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns má draga úr einkennum ofnæmis eða koma alveg í veg fyrir þau.
Desloratadine Alvogen er gefið við árstíðabundnu ofnæmiskvefi. Lyfið slær á ofnæmiseinkenni eins og hnerra, nefrennsli, kláða, tárarennsli og roða í augum. Lyfið er einnig notað við ofsakláða. Deslóratadín hefur ekki róandi eða sljóvgandi áhrif.
Notkun:
- Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Ein 5 mg tafla í munn á dag. Töflurnar leysast upp í munni.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 389603
Verð2.009 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.