Lyf
Flynise
5,00 mg - 100 stkDeslóratadín, virka efnið í lyfinu, hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns má draga úr einkennum ofnæmis eða koma alveg í veg fyrir þau.
Flynise er gefið við árstíðabundnu ofnæmiskvefi. Lyfið slær á ofnæmiseinkenni eins og hnerra, nefrennsli, kláða, tárarennsli og roða í augum. Lyfið er einnig notað við ofsakláða. Deslóratadín hefur ekki róandi eða sljóvgandi áhrif.
Notkun:
- Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: 5 mg á dag. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 435151
Verð3.410 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.