Lyf
Kestine
10,00 mg - 100 stkEbastín, virka efnið í Kestine, tilheyrir flokki andhistamína sem ekki eru slævandi. Lyfið hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis.
Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns má minnka einkenni ofnæmis eða koma í veg fyrir þau. Kestine er notað gegn ofnæmiseinkennum sem stafa af histamíni, t.d. ofnæmisbólgum í nefi og augum, ofsakláða, ofnæmiskvefi og skordýrabitum.
Notkun:
- Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: 10-20 mg á dag.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 396318
Verð7.037 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.