Zovir
50,00 mg/g - 2 gZovir er notað við veirusýkingum. Acíklóvír, virka efnið í lyfinu, hindrar myndun erfðaefnis herpesveira og stöðvar þannig fjölgun þeirra. Þegar veira er stöðvuð reynist ónæmiskerfi líkamans auðveldara að vinna á sýkingunni.
Ónæmisbældir einstaklingar, t.d. alnæmissjúklingar, gætu þurft að nota lyfið til langs tíma því að þeir ná síður að vinna á veirunni. Lyfið hefur mest áhrif sé það strax notað í byrjun á sýkingu, eða á meðan veiran er ennþá að fjölga sér. Acíklóvír er notað við sýkingum af völdum herpesveira. Við vægari sýkingum í húð, eins og frunsu, er lyfið notað útvortis en við slæmum eða síendurteknum sýkingum er lyfið tekið inn eða gefið í æð. Athugið að veiran er smitandi á meðan sár af völdum sýkingarinnar eru til staðar, líka þótt lyfið sé notað.
Notkun:
- Krem: Borið á í þunnu lagi 5 sinnum á dag í 5-10 daga.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.