Lyf
Alvofen Express
400,00 mg - 50 stkHeimilt er að selja takmarkað magn lyfsins í lausasölu, mest 50 stk (1 pakki) handa einstaklingi
Alvofen Express er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Virka efnið íbúprófen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda meðal annars bólgumyndun.
Alvofen Express er notað við gigtar- og vöðvaverkjum, bakverk, taugaverkjum, mígreni, höfuðverk, tannpínu, tíðaverkjum og kvefi með hita og inflúensu.
Vörunúmer: 427075
Verð1.899 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
400 mg í senn allt að 3svar á dag, eftir þörfum, með a.m.k. 4 klst. millibili.
Hylkin takist inn með vatnsglasi.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.