Lyf
Panodil Zapp
500,00 mg - 20 stkParacetamól er verkjastillandi og hitalækkandi. Það hentar við vægum verkjum sé engin bólga fyrir. Paracetamól er oft blandað öðru verkjastillandi efni, kódeini, til þess að magna áhrif þess. Panodil Zapp slær á verki, eins og höfuðverk, tannverk, tíðaverki, vöðva- og liðverki og gigtarverki.
Það slær einnig á hita. Verkjastillandi áhrif paracetamóls eru sambærileg við asetýlsalicýlsýru (aspirín). Paracetamól er einnig notað til að slá á sótthita. Það ertir ekki magaslímhúð og hentar þeim sem hafa fengið magasár eða eru viðkvæmir í maga.
Notkun:
- Fullorðnir (einnig aldraðir) og börn 12 ára og eldri (að lágmarki 40 kg): 2 töflur (500 mg, alls 1.000 mg) 3-4 sinnum á sólarhring. Þó aldrei fleiri en 8 töflur (4.000 mg) á sólarhring. Í einstaka tilfellum getur 1 tafla (500 mg) 3-4 sinnum á sólarhring verið nægjanlegt.
- Það skulu að minnsta kosti líða 4 klst. á milli hvers skammts.
- Börn yngri en 12 ára: Ekki má nota Panodil Zapp töflur handa börnum undir 12 ára aldri nema að læknisráði.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 082830
Verð880 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.