Lyf
Paracet
60,00 mg - 10 stkVörunúmer: 469678
Verð1.619 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Paracetamól er verkjastillandi og hitalækkandi. Það hentar við vægum verkjum sé engin bólga fyrir. Verkjastillandi áhrif paracetamóls eru sambærileg við asetýlsalicýlsýru (aspirín). Paracetamól er einnig notað til að slá á sótthita. Það ertir ekki magaslímhúð og hentar þeim sem hafa fengið magasár eða eru viðkvæmir í maga. Paracet endaþarmsstílar eru einkum ætlaðir ungabörnum til verkjastillingar og hitalækkunar.
Notkun:
Venjulegar skammtastærðir:
Börn: 10-15 mg á hvert kg líkamsþyngdar í senn 1-4 sinnum á dag.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
U.þ.b. 1-1½ klst.
Verkunartími:
4-6 klst.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.