Lyf
Rizatriptan Alvogen
10,00 mg - 2 stkRizatriptan Alvogen er mígrenilyf. Verkirnir sem fylgja mígreni eru taldir stafa af víkkun slagæða í höfði. Rizatriptan, virka efni lyfsins, hefur sérhæfð áhrif á þessar æðar og veldur því að þær dragast saman.
Lyfið er notað við mígreniköstum, með eða án fyrirboða. Hins vegar á ekki að nota það sem fyrirbyggjandi meðferð við mígreni. Lyfið skal aðeins nota þegar greining á mígreni hefur verið staðfest og aðrir hugsanlega alvarlegir sjúkdómar hafa verið útilokaðir.
Notkun:
- Ráðlagður dagskammtur er 10 mg, sem skal taka við fyrstu einkenni um verk. Taka má annan skammt ef einkenni koma aftur fram innan 24ra klst. en þó ekki innan 2ja klst. frá upphafsskammti. Heildarskammtur yfir daginn má ekki vera stærri en 20 mg og ekki skal taka lyfið oftar en 2svar á sólarhring. Töflurnar má setja undir tungu þar sem þær leysast upp og kyngja þeim með munnvatni. Ekki brjóta töflurnar.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 536958
Verð2.492 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.