Heimilt er að selja takmarkað magn lyfsins í lausasölu, mest 50 stk (1 pakki) handa einstaklingi. Alvofen Express er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Virka efnið íbúprófen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda meðal annars bólgumyndun.
Alvofen Express er notað við gigtar- og vöðvaverkjum, bakverk, taugaverkjum, mígreni, höfuðverk, tannpínu, tíðaverkjum og kvefi með hita og inflúensu.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.