Heimilt er að selja takmarkað magn lyfsins í lausasölu, mest 30 stk handa einstaklingi
Paracetamól er verkjastillandi og hitalækkandi. Það hentar við vægum verkjum sé engin bólga fyrir. Panodil Zapp slær á verki, eins og höfuðverk, tannverk, tíðaverki, vöðva- og liðverki og gigtarverki.
Það slær einnig á hita. Verkjastillandi áhrif paracetamóls eru sambærileg við asetýlsalicýlsýru (aspirín). Paracetamól er einnig notað til að slá á sótthita. Það ertir ekki magaslímhúð og hentar þeim sem hafa fengið magasár eða eru viðkvæmir í maga.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.