Heimilt er að selja takmarkað magn lyfsins í lausasölu, mest 50 stk (1 pakki) handa einstaklingi
Íbúfen er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Virka efnið íbúprófen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda meðal annars bólgumyndun. Íbúfen er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu, höfuðverk, mígreni og sem verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir. Lyfið er einnig notað til að lækka hita
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.