Lyf
Calcium-Sandoz
500,00 mg - 100 stkVörunúmer: 193813
Verð8.974 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Kalk (kalsíum) er uppistöðuefni beina og tanna, en 99% af kalki líkamans er að finna í beinum og tönnum. Stöðug inntaka kalks er nauðsynleg fyrir nýmyndun beina, jafnframt því sem hún dregur úr myndun parathormóns og hægir með því móti á niðurbroti beina.
Lyfið er notað við sjúkdómsástandi vegna kalkskorts, sem fyrirbyggjandi meðferð gegn beinþynningu og einnig við bráðri lækkun á kalki í blóði. Kalkskortur getur leitt til óeðlilegs beinvaxtar hjá börnum en skortur hjá fullorðnu fólki getur leitt til beinþynningar. Samtímis inntaka á D-vítamíni eykur nýtingu kalks í líkamanum.
Notkun:
Fullorðnir: 500-1500 mg á dag. Börn: 500-1000 mg á dag. Töflurnar leysist upp í vatnglasi og drukkið.