1 af 6
Lansinoh
Lansinoh TheraPearl hita-eða kæli brjóstameðferð 3 í 1
Lansinoh Therepearl hitameðferð og kælimeðferð inniheldur engin eiturefni og aðstoðar þig við hinar ýmsu aðstæður í brjóstagjöfinni. Einstök hönnun lagar sig að brjóstinu eða dælunni eins og baunapoki og virkar allan hringinn. Hannað af lækni og viðurkennt af brjóstagjafaráðgjöfum. Brjóstameðferðina er hægt að nota við verkjum, bólgum, stálmum, stíflum eða brjóstabólgu.
Köld meðferð: dregur úr stálma. Frystið í að minnsta kosti 2 klst
Heit meðferð: losar stíflur og brjóstabólgu. Setjið baksturinn í meðfylgjandi tauáklæði og hitið i örbylgjuofni í 15 sekúndur. Þú mátt bæta við 5 sekúndna viðbótarhitun eftir þörfum. Eða þar til að hæfilegu hitastigi er náð.
Með brjóstadælu: notið heitan bakstur til að stytta dælutíma. Setjið yfir brjóstaskjöld dæunnar á meðan dælt er og smellið föstu með smellunni. Má einnig nota á brjóstið áður en farið er að dæla til að örva tæmingarviðbragð.
- Inniheldur tvo margnota bakstra og tauhlífar
- Hreinsið með mildri sápu, þvottaefni eða sótthreinsispritti
- Inniheldur ekki BPA
Vörunúmer: 10159542
Verð3.399 kr.
1
Án BPA Án latex
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.