CGM blóðsykursmælir
1 af 2
CGM blóðsykursmælir
FORA Connect 21 er samfelldur blóðsykursmælir (CGM) með allt að 21 dags endingartíma. Fylgstu með glúkósagildum í rauntíma í snjallsímanum þínum með 15 mínútna upphitun og 5 mínútna uppfærslum.
Ný kynslóð samfelldrar blóðsykursmælingar – allt að 21 dags ending.
Fylgstu með blóðsykrinum í rauntíma án endurtekinna fingurstungna til kvörðunar. FORA Connect 21 sendir sjálfvirkt glúkósamælingar í snjallsímann þinn á 5 mínútna fresti, býður upp á sérsniðnar viðvaranir og veitir skýra yfirsýn yfir þróun blóðsykurs allan sólarhringinn. Með aðeins 15 mínútna upphitunartíma, allt að 21 dags notkun og MARD 8,2% færðu nákvæmni og þægindi sem þú getur treyst.
• Allt að 21 dagar á einum skynjara
• 15 mínútna upphitunartími
• Mæling á 5 mínútna fresti
• Kvörðunarlaus (engin fingurstunga til kvörðunar)
• Viðvaranir við háum og lágum blóðsykri
• Vatnsheldur (IP58)
• Fyrir iOS og Android (App: Instara)
Hentar fyrir
• Einstaklinga með sykursýki af tegund 1 eða 2
• Heilbrigðisstarfsfólk sem fylgist með blóðsykri sjúklinga
• Einstaklinga sem vilja fá betri innsýn í áhrif mataræðis, hreyfingar og daglegs lífs á blóðsykur
Mikilvægar upplýsingar
• Skynjarinn er ætlaður til notkunar á upphandlegg.
• Fingurstungumæling getur verið nauðsynleg ef einkenni passa ekki við mælingar skynjarans eða ef grunur er um ónákvæma mælingu.
• Lesið notkunarleiðbeiningar vandlega fyrir fyrstu notkun.
Veldu stað þar sem
• Húðin er heil, hrein og þurr
• Ekki eru ör, marblettir, roði eða erting
• Mælirinn verður ekki fyrir miklu nuddi frá fatnaði, töskuböndum eða íþróttabúnaði
• Svæðið er ekki beint á bein eða vöðvabrún
• Nægilegt mjúkt undirhúðarlag er til staðar
Gott ráð
Ekki setja krem eða olíu á svæðið áður en mælirinn er settur á. Hrein og þurr húð hjálpar líminu að festast betur.
Forðastu einnig staði sem þú liggur mikið á, þar sem þrýstingur getur haft áhrif á mælingar og valdið óþægindum.
Fyrsti dagurinn með nýjum sensor
FORA Connect 21 byrjar að sýna mælingar eftir um 15 mínútur, en eins og með aðra CGM-mæla getur sensorinn þurft tíma til að aðlagast líkamanum. Mælingar geta því verið aðeins óstöðugri fyrstu klukkustundirnar og verða oft stöðugri eftir um 24 klukkustundir.
Þetta gerist vegna þess að sensorinn þarf að jafna sig í vefnum undir húðinni og ná stöðugri snertingu við vefjavökvann. CGM mælir glúkósa í vefjavökva, en fingurblóðsmælir mælir glúkósa beint úr blóði.
Ef gildi passar ekki við líðan er ráðlagt að staðfesta með fingurblóðsmælingu.







