Toilax inniheldur bisakódýl sem hefur hægðalosandi áhrif. Það ertir þarmavegginn og örvar með því hreyfingar í þörmunum. Bisakódýl er notað til að tæma þarma fyrir skurðaðgerðir eða speglun.
Það er einnig notað við tilfallandi hægðatregðu. Ef bisakódýl er notað lengi getur það skaðað eðlilegar hreyfingar í þörmunum og sjúklingur orðið háður notkun hægðalyfja.
Notkun:
Innhellislyf: Fullorðnir og börn eldri en 3ja ára: Innihaldi einnar túpu er þrýst í endaþarm. Sýruhjúptöflur, fullorðnir: 5-10 mg fyrir svefn. Börn eldri en 3ja ára: 5 mg í einum skammti. Töflurnar gleypist heilar.