Holy Basil te
Holy Basil te
50 gAdaptogen jurt sem styður við aðlögunarhæfni líkamans við andlegu og líkamlegu álagi. Hentar vel sem hluti af daglegri rútínu fyrir fókus og stöðugleika.
Holy Basil, einnig þekkt sem tulsi, er arómatísk jurt sem á rætur í austurlenskri jurtamenningu þar sem hún hefur verið nýtt um aldir sem hluti af daglegri vellíðanarrútínu. Hún er talin ein af klassísku „adaptogen“ jurtunum í hefðbundinni notkun.
Í hefðbundinni jurtamenningu hefur Holy Basil verið tengd við að styðja við aðlögunarhæfni líkamans þegar hann er undir líkamlegu eða andlegu álagi. Hún er gjarnan valin þegar markmiðið er að styðja við lífeðlisfræðilegt jafnvægi streituviðbragða og eðlilega svörun taugakerfisins.
Te úr Holy Basil hefur djúpan og kryddaðan karakter og hentar vel sem hluti af daglegri rútínu þegar áhersla er lögð á stöðugleika, fókus og innra jafnvægi.
Virk efni: M.a. ilmkjarnaolíur, rósmarinic sýra, ursolic sýra.
Holy Basil er hluti af heildrænni nálgun þar sem unnið er með náttúrulegan stuðning jurta sem mannfólk hefur treyst á í þúsundir ára.
Setjið 1 teskeið í bolla af sjóðandi vatni og látið standa í 20 mínútur. Sigtið og drekkið 3 bolla á dag.
Varúð: Hættið notkun ef vart verður við óeðlileg einkenni. Ef þú ert ófrísk, með barn á brjósti eða tekur lyf, leitaðu ráða hjá lækni eða heilbrigðisstarfsfólki. Neytið ekki meira en ráðlagt er. Ekki fyrir magabólgur.







