Solaray Femibalance 100 hylki
100 stkÞegar tekist er á við breytingaskeiðið þarf að huga að mörgum þáttum og Femi Balance inniheldur jurtir sem draga m.a úr nætursvita, svefnvandamálum, stoðkerfisverkjum, depurð, þreytu og þurrki.
Dásamleg jurtablanda sem kemur á góðu hormónajafnvægi hjá konum á besta aldri. Femi Balance frá Solaray er í dag eitt vinsælasta bætiefnið í þessum flokki á norðurlöndunum.
Hér er vandað til verka því í hverju hylki eru 465 mg af sérvöldum jurtum, en þær eru: rauðsmári, granateplakjarnar, yamsrót og hindberjablöð, grikkjasmárafræ, grávalhnetubörkur og fennikufræ.
Allt eru þetta afar kvenlegar jurtir sem gera miklu mun meira en að aðstoða við hliðarverkanir breytingaskeiðsins. Ýmsar jákvæðar „aukaverkanir“ kunna því að fylgja með, t.d. betri líðan, meiri orka og aukið úthald.
Femi Balance:
• Getur dregið úr nætursvita og svefnvandamálum
• Vinnur gegn verkjum í stoðkerfi
• Byggir upp slímhúðir og dregur úr þurrki
• Hefur mjög jákvæð áhrif á andlega líðan
• Eykur orku og úthald
Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.
Inniheldur ekki soja.
Í hverju glasi af Femi Balance eru 100 hylki, en mælt er með 2 hylkjum á dag.