Dorm 2.0 #áfylling
1 af 2
Dorm 2.0 #áfylling
90 hylkiDorm er hágæða bætiefni sem styður við slökun og eðlileg svefngæði. Dorm inniheldur þurrgerjuð íslensk mysuprótein, sérhannaða örhjúpaða góðgerlablöndu, sérvaldar amínósýrur og B-vítamín sem stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins. Dorm styður því við slökun, svefn og eðlilega endurheimt.
Dorm – stuðningur við svefn og hvíld
Dorm er þróað til að styðja við eðlilegt svefnmynstur og endurheimt. Varan inniheldur blöndu sérvalinna náttúrulegra og lífvirkra efna.
Samsetning Dorm vinnur með náttúrulegum ferlum líkamans og er ætluð þeim sem vilja mildan og reglubundinn stuðning við svefn og endurheimt.
Af hverju skiptir svefn máli?
Svefn gegnir lykilhlutverki í líkamlegri og andlegri endurheimt. Á meðan við sofum fer fram endurnýjun frumna, jafnvægi í hormónakerfi og úrvinnsla taugakerfisins.
Ónógur eða óreglulegur svefn getur haft áhrif á orku, einbeitingu, ónæmiskerfi og almenna líðan.
Fyrir hverja hentar Dorm?
Dorm getur hentað fyrir þau sem:
• Eiga erfitt með að sofna eða ná samfelldum svefni.
• Vilja stuðning við svefn án slævandi efna.
• Vakna óendurnærð eða upplifa óróleika á nóttunni.
• Upplifa svefntruflanir í tengslum við streitu, álag eða breytingar á rútínu.
• Vilja mildan, daglegan stuðning við svefn og endurheimt.
Dorm fæst í glerglasi (90 hylki) og áfyllingarumbúðum (90 hylki).
Glerglas Jörth verndar gæði bætiefnanna og styður sjálfbærni.
Áfyllingar koma í einföldum, léttum og umhverfisvænum umbúðum sem má síðan henda í lífræna sorpið.
Með því að margnota glösin frá Jörth geymir þú bætiefnin þín við bestu mögulegu skilyrði.
Ábyrgðaraðili: Jörth
Þurrgerjað íslensk mysuprótein
Bætir næringu og viðheldur heilbrigðum þarmafrumum.
Míkróhjúpaðir góðgerlar
- Lacticaseibacillus casei - Styður við þarmaflóru og róar taugakerfið.
- Lacticaseibacillus helveticus - Hjálpar til við að bæta svefngæði og draga úr streitu.
- Lacticaseibacillus rhamnosus - Styður við meltingu og ónæmiskerfið.
- Lactiplantibacillus plantarum - Styður við þarmaflóru og bætir meltingarstarfsemi.
- Ligilactobacillus gasseri - Bætir meltingu og stuðlar að heilbrigðum þörmum.
- Limosilactobacillus fermentum - Styður við ónæmiskerfi og bætir meltingarferli.
- Limosilactobacillus reuteri - Hefur róandi áhrif á taugakerfið og bætir svefn.
Aminósýrur
- L-tryptófan - Nauðsynlegt fyrir framleiðslu á serótóníni og melatóníni, sem styðja við betri svefn.
- L-þeanín - Hefur róandi áhrif og stuðlar að betri svefngæðum.
- Glýsín - Styður við vöðvaslökun og hjálpar til við svefn.
- L-glútamín - Styður við meltingarveginn og bætir þarmaheilbrigði.
- Pýridoxín HCl (B6-vítamín) - Stuðlar að taugaboðefnaframleiðslu og eykur svefngæði.
- Nútral próteasi (Bacillus subtilis) - Ensím sem stuðlar að betri meltingu.
Til að fá sem mest út úr Dorm er mikilvægt að taka það rétt.
Fyrir nóttina
Besti tíminn til að taka Dorm er um 30-60 mínútum áður en þú ferð að sofa. Þetta gefur innihaldsefnunum eins og L-tryptófani og L-þeanín tíma til að virka og stuðla að slökun og betri svefngæðum.
Drekktu vatn með
Drekktu glas af vatni með bætiefninu. Þetta auðveldar upptöku næringarefnanna og tryggir að þau komist hratt inn í kerfið.
Regluleg inntaka
Er lykilatriði til að tryggja að líkaminn fái stöðugt þau efni sem stuðla að betri svefni. Þó að þú finnir mun eftir fyrstu notkun eru áhrifin langvarandi þegar það er tekið stöðugt yfir lengri tíma.
Ekki borða fyrir nóttina
Ef mögulegt er, forðastu að borða mjög þunga máltíð rétt áður en þú tekur bætiefnið. Þungar máltíðir geta haft áhrif á svefngæði og hvernig líkaminn nýtir innihaldsefnin.







