Focuz 2.1
1 af 2
Focuz 2.1
90 hylkiFocuz er öflugt bætiefni sem styður við einbeitingu og skýra hugsun með öflugri blöndu af þurrgerjuðum mysupróteinum, sérhannaðri örhjúpaðri góðgerlablöndu, sérvöldum amínósýrum og B-vítamíni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins. Focuz er fyrir þá sem vilja styðja við einbeitingu og hámarka frammistöðu yfir daginn.
Focuz – stuðningur fyrir einbeitingu og hugrænt jafnvægi
Focuz er íslenskt bætiefni þróað til að styðja við einbeitingu og skýra hugsun í daglegu lífi. Varan inniheldur blöndu sérvalinna, náttúrulegra og lífvirkra efna.
Samsetning Focuz vinnur með náttúrulegum ferlum líkamans og er hönnuð til daglegrar notkunar til að veita mildan stuðning við krefjandi verkefni.
Af hverju skiptir einbeiting máli?
Einbeiting og skýr hugsun eru grundvallarþættir í daglegri frammistöðu, ákvarðanatöku og vellíðan.
Þegar hugurinn er yfirhlaðinn getur það haft áhrif á einbeitingu, minni og andlegt jafnvægi.
Stuðningur við taugakerfið og orkubúskap heilans getur því verið mikilvægur þáttur í heildrænni nálgun á fókus og skýrleika.
Fyrir hverja hentar Focuz?
Focuz getur hentað fyrir þau sem:
• Upplifa skerta einbeitingu eða andlega þreytu.
• Stunda krefjandi hugræna vinnu eða nám.
• Vilja styðja við skýra hugsun án örvandi efna.
• Vilja koma jafnvægi á einbeitingu, orku og hugarró.
Focuz fæst í glerglasi (90 hylki) og áfyllingarumbúðum (90 hylki).
Glerglas Jörth verndar gæði bætiefnanna og styður sjálfbærni.
Með því að margnota glösin frá Jörth geymir þú bætiefnin þín við bestu mögulegu skilyrði.
Ábyrgðaraðili: Jörth
Gerjuð íslensk mysuprótein: Næra þarmafrumurnar og stuðlar að betri meltingarstarfsemi.
Aminósýrur:
- L-Týrósín: Nauðsynleg fyrir framleiðslu taugaboðefna eins og dópamíns og noradrenalíns, sem bæta fókus og einbeitingu.
- L-Glútamín: Styður við heilbrigða þarmaflóru og bætir meltingu.
- L-Ísoleusín: Styður við vöðvaendurheimt og orku.
- L-eusín: Nauðsynlegt fyrir vöðvauppbyggingu og styrk.
- L-Valín: Stuðlar að aukinni orku og vöðvaendurheimt.
- Pantóþensýra (B5-vítamín): Nauðsynlegt fyrir orkumyndun og styður við taugakerfið.
- Nútral próteasi (Bacillus subtilis): Ensím sem stuðlar að betri meltingu.
Míkróhjúpaðirgóðgerlar:
- Lacticaseibacillus helveticus: Styður við þarmaflóru og bætir andlega vellíðan og einbeitingu.
- Bacillus subtilis: Bætir meltingu með því að brjóta niður prótein og stuðla að heilbrigðri þarmaflóru.
- Bifidobacterium breve: Hefur bólgueyðandi eiginleika og styður við almenna meltingarheilsu.
- Bifidobacterium longum: Styður við heilbrigða þarmaflóru og hefur jákvæð áhrif á taugakerfið.
- Saccharomyces boulardii: Hefur verndandi áhrif gegn niðurgangi og eykur jafnvægi í þarmaflórunni.
Til að fá sem mest út úr Focuz 2.1 bætiefninu og hámarka áhrif þess á einbeitingu, fókus og andlega orku, er mikilvægt að taka það á réttan hátt.
Taktu inn á morgnana eða fyrri hluta dags
Focuz er þróað til að bæta einbeitingu og andlega virkni svo það er best að taka það á morgnana eða fyrri hluta dags þegar þú þarft mestan fókus. Það er ekki æskilegt að taka Focuz á kvöldin þar sem það gæti truflað svefn vegna aukinnar orku.
Taktu inn með mat
Best er að taka Focuz með máltíð sérstaklega ef hún inniheldur prótein og fitu. Þetta hjálpar líkamanum að nýta næringarefnin betur eins og B-vítamínin og amínósýrurnar í Focuz.
Taktu reglulega inn
Til að hámarka áhrif Focuz er mikilvægt að taka það reglulega á hverjum degi. Langtíma notkun hjálpar til við að byggja upp betri einbeitingu, skýrleika og bætta taugastarfsemi.
Drekktu nóg af vatni
Drekktu nægilegt magn af vatni með bætiefninu til að styðja við upptöku og heilbrigða meltingu..
Best er að taka Focuz á morgnana eða fyrripart dags, með mat og vatni, til að stuðla að betri einbeitingu og orku yfir daginn. Regluleg dagleg notkun tryggir stöðug áhrif á einbeitingu og skýrleika.







