Immun 1.1
1 af 2
Immun 1.1
90 hylkiImmun er einstakt bætiefni sem styður við ónæmiskerfið með öflugri blöndu af gerjaðri íslenskri broddmjólk, lysozyme, ovótransferríni ásamt sínki sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Immun inniheldur einnig A vítamín og bíótín sem eru nauðsynleg til að viðhalda heilbrigðri slímhúð. Immun styður við heilbrigðar varnir líkamans og eðlilega bólgusvörun.
Immun – stuðningur við ónæmiskerfið
Immun er íslenskt bætiefni þróað til að styðja við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.
Immun er íslenskt bætiefni þróað til að styðja við náttúrulegar varnir líkamans með blöndu sérvalinna lífvirkra þátta ásamt gerjaðri íslenskri broddmjólk.
Immun vinnur með náttúrulegum ferlum líkamans og er hannað til daglegrar notkunar.
Af hverju skiptir ónæmiskerfið máli?
Ónæmiskerfið gegnir lykilhlutverki í vernd líkamans og bregst stöðugt við álagi, sýklum og öðrum utanaðkomandi áhrifum.
Stuðningur við jafnvægi og virkni ónæmiskerfisins getur því verið mikilvægur þáttur í almennri heilsu og vellíðan.
Eðlileg starfsemi ónæmiskerfisins er háð fjölmörgum þáttum, þar á meðal næringarástandi, lífsstíl og hvíld.
Fyrir hverja hentar Immun?
Immun getur hentað fyrir þau sem:
• Vilja styðja við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.
• Finna fyrir auknu álagi, þreytu eða endurteknum veikindum.
• Finna fyrir auknu álagi eða þreytu.
• Vilja veita líkamanum daglegan, mildan stuðning við varnir.
• Leggja áherslu á forvarnir og heildræna nálgun á heilsu.
Immun fæst í glerglasi (90 hylki) og áfyllingarumbúðum (90 hylki).
Glerglas Jörth verndar gæði bætiefnanna og styður sjálfbærni.
Með því að margnota glösin frá Jörth geymir þú bætiefnin þín við bestu mögulegu skilyrði.
Ábyrgðaraðili: Jörth
- Gerjuð íslensk broddmjólk: Rík af ónæmisstyrkjandi efnum og næringarefnum sem styðja við ónæmiskerfið.
- Góðgerlar: Styðja við heilbrigða þarmaflóru og meltingarstarfsemi.
- Lysozyme: Hefur örverueyðandi eiginleika og hjálpar til við að vernda gegn sýkingum.
- Ovótransferrín: Járnbindandi prótein sem hefur sýklahemjandi og bólgueyðandi virkni.
- Sinksítrat (Zink): Nauðsynlegt fyrir ónæmisstarfsemi og bólgustjórnun.
- Retinýl pálmitat (A-vítamín): Styður við ónæmiskerfið og húðheilsu.
- Bíótín (B7-vítamín): Nauðsynlegt fyrir efnaskipti og stuðlar að heilbrigðri húð, hári og nöglum.
Til að fá sem mest út úr Immun og hámarka virkni þess er mikilvægt að taka það rétt.
Daglega
Taktu Immun daglega, jafnvel þótt þú finnir ekki fyrir lasleika né álagi. Þannig getur þú byggt upp varnir ónæmiskerfisins og viðhaldið stöðugri verkun Immun.
Taktu inn með mat
Immun inniheldur fituleysanlegt A-vítamín (retínýl pálmitat) sem best er að taka inn með máltíð sem inniheldur smá fitu. Þetta hjálpar líkamanum að nýta vítamínið betur.
Tryggir einnig betri upptöku næringarefna eins og á sínki og bíótíni.
Morgun, síðdegi, kvöld
Það er mikilvægt að taka Immun inn þrisvar sinnum á dag á sama tíma, daglega, til að viðhalda stöðugri virkni
Drekktu vatn með
Drekktu glas af vatni þegar þú tekur bætiefnið þar sem það hjálpar til við frásog og nýtingu efna. Það er mikilvægt að fylgja ráðlögðum dagskammti fyrir hámarksárangur.







