Calcium Magnesium Complex inniheldur kalsíum og magnesíum ásamt Magnifood® blöndu úr frostþurrkuðum jurtum og plöntuefnum. Kalsíum og magnesíum stuðla að eðlilegri starfsemi vöðva og eru mikilvæg fyrir viðhald eðlilegra beina. Varan er vegan og laus við fylliefni, bindiefni og önnur aukaefni.
Bætiefnið kemur í jurtahylkjum sem er mjög auðvelt að taka inn og kyngja.
Í blöndunni eru meðal annars netlulauf, sem innihalda öll réttu efnin til að auka upptökuna á kalki og magnesíum. Bætiefnið inniheldur einnig klóelftingu sem eykur virknina enn frekar. Engifer og alfalfa auka svo upptökuna enn meir.
Líkt og önnur bætiefni Terranova, þá er blandan hönnuð með það að leiðarljósi að innihaldsefnin tryggi hámarks virkni í hverjum mannslíkama, burtséð frá aldri, ástandi og heilsu.
Það þarf einungis 2-4 hylki á dag til að fá fram fullnægjandi virkni.
Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.