ElectroRice gegn ofþornun Strawberry
Naveh Pharma
ElectroRice gegn ofþornun Strawberry
5 stkVörunúmer: 10105686
Verð1.899 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
ElectroRice er ætlað til inntöku vegna ofþornunar sökum lausra hægða. ElectroRice tryggir hámarks upptöku á vökva til að bæta fyrir það vökvatap sem hefur átt sér stað. Lausar hægðir er algengt vandamál, sérstaklega hjá börnum. Við slíkt ástand missir líkaminn afar hratt vökva og electrolíta sem eru honum lífsnauðsynlegir til þess að geta starfað eðlilega.
Til að koma á eðlilegri starfsemi í líkamanum er grunnmeðferð við lausum hægðum að koma á vökvajafnvægi en þetta á sérstaklega við hjá börnum. Hrísgrjónalausnin hefur það að markmiði að draga úr lausum hægðum og hægja á vökvatapi í líkamanum, ásamt því að sterkjugrunnurinn (í stað glúkósa) hefur þau áhrif að það verður hæg losun á glúkósamólíkúlum.
Blandan er unnin úr hrísgrjónum samkvæmt stöðlum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Varan inniheldur Rice flour, Strawberry flavoring, Trisodium Citrate, Sodium Chloride, Methyl Cellulose, Sucraloze, Zinc Glucoonate. ElectroRice er afar bragðgóð lausn en blandan er jafnframt góð næring og lykilinn að því að barn fáist til að drekka hana.
Leysið upp eina pakkningu í 200ml af vatni. 5 skammtar á dag, 1 poki inniheldur 1 skammt.
Hentar frá þriggja mánaða aldri, hafa skal samráð við lækni fyrir yngri hópa.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.