Eplabragð
Eplabragð
10 stkUnbroken er einstök vara með margþætta virkni:
- Hraðari endurheimt vöðva: 25 amínósýrur í frjálsu formi og stuttum peptíðum, þar af 9 nauðsynlegu amínósýrurnar (9EAA og BCA2)
- Styður vel við ónæmiskerfið: Mikið magn af sinki og selen.
- Náttúrulegt orkuskot án koffíns: Jafnari orka yfir daginn, mikið magn af B12 vítamíni og engin gerviefni.
Unbroken veitir þér nauðsynlega næringu á hraðan máta fyrir vöðva, getur minnkað vöðvaeymsli og veitt þér jafnari orku og betri vellíðan.
Unbroken getur hjálpar þér að endurheimta orkuna og jafnvægið sem þú þarft til að takast á við daginn, hvort sem þú ert íþróttamaður eða tileinka þér heilbrigðari lífsstíl.
VOTTAÐ AF INFORMED SPORT
Allir íþróttamenn þurfa að reiða sig á Informed Sport®, sem er gæðavottun sem tryggir það varan innihaldi ekki ólögleg efni sem eru á bannlista WADA. Unbroken® er vottað af Informed Sport®. Þú getur verið fullviss um að orðspor þitt sé í öruggum höndum.
Tíminn strax eftir æfingu er oft talinn vera mikilvægasti þátturinn í tímasetningu næringar. Efnaskiptaglugginn „anabolic window “, þ.e. fyrstu 30-60 mínúturnar eftir æfingu er besti tíminn til að hlúa að vöðvastyrk og endurheimt með hjálp mikilvægrar næringar.
- Unbroken tekur ferskt og heilt prótein úr laxi (löng keðja af amínósýrum þ.e. peptíð sem hefur háa sameindarþyngd).
- Það sem er einstakt við Unbroken er að notuð eru náttúruleg ensím laxsins til að brjóta niður próteinsameindirnar þ.e. við líkjum eftir eðlilegri meltingu mannsins.
- Niðurstaðan: 100% vatnsrofið prótein og 25 amínósýrur í frjálsu formi, m.a. 9EAA (BCAA), kreatin AA og kollagen AA (hydrolyzed stutt peptíð).
- Líkaminn eyðir litlum sem engum tíma og orku í meltingu og því hefst batinn einungis nokkrum mínútum eftir inntöku. Tímasetning næringar er því mikilvæg. Með Unbroken getur þú jafnað þig á meðan líkaminn er undir álagi og um leið styrkt ónæmiskerfið.
Sítrónusýra, kalíumvetniskarbónat, náttúrulegt maltódextrin, náttúrulegt eplabragð, stevíól glýkósíð, riboflavin-5 phosphate sodium.
Ofnæmisviðvörun: Inniheldur lax (fiskur)
Amínósýrur: Alanín, Arginín, Aspartiksýra & Asparagín, Cystín & cystein sem cysteicsýra), Glútamiksýra & Glútamín, Glýsín, Histidín, Hýdróxyprólín, Ísóleusín, Leusín, Lýsín, Methionín, Ornithín, Phenylalanín, Prólín, Serín, Þreonín, Þýroxín, Trýptófan, Tyrósín, Tárín, Valín.
Vitamin (%RDS hver tafla): B12-vítamín (96.0) B1- vítamín (0.4), B2- vítamín (0.3), B3- vítamín (0.5), B6-vítamín (0.7), fólínsýra (1.0), C-vítamín (0.9)
Steinefni (%RDS hver tafla):Kalk (0.022), klór (1.0), magnesíum (0.1), fosfór (2.5), kalíum (20.2), selen (14.1), natríum (0.8), járn (1.2), sink (35.8), joð (2.0), kopar (9.1).
HVERNIG ER BEST AÐ TAKA UNBROKEN?
- Taktu 1 til 2 töflur á dag (best eftir æfingu, gott á morgnanna eða fyrir svefn).
- Hver tafla er leyst upp í vatnsglasi eða vatnsflösku. Þú getur notað kalt vatn, heitt vatn, sódavatn eða hvað sem þú vilt.
- Brjóttu töfluna í tvennt fyrir hraðari upplausn.







