Gerður jurtate
1 af 2
Gerður jurtate
80 gJurtate með kamillu, piparmyntu og fennel sem styður við eðlilega starfsemi meltingarvegar. Hentar við viðkvæmri meltingu og eftir máltíðir. Þróað af Kolbrúnu grasalækni. Varan inniheldur lífræn hráefni.
Mild jurtablanda sem styður við ró og jafnvægi í meltingu, þróuð af Kolbrúnu grasalækni.
Gerður er jurtate sem inniheldur jurtir sem hafa verið notaðar um aldir til að styðja við eðlilega starfsemi meltingarvegarins. Blandan er þekkt fyrir róandi og vindeyðandi eiginleika og getur haft jákvæð áhrif þegar meltingin er viðkvæm eða í tímabundnu ójafnvægi.
Gerður er ilmríkt jurtate með hlýlegum og mjúkum tónum. Kamilla, piparmynta og fennel mynda samstillta heild sem hentar vel eftir máltíð eða þegar þú vilt eiga rólega stund. Margir kjósa teið þegar þeir finna fyrir óþægindum í maga eða viðkvæmri meltingu. Einnig hafa mæður í gegnum tíðina drukkið slíkar jurtablöndur sem hluta af eigin vellíðan á meðan þær eru með barn á brjósti.
Gerður er hluti af heildrænni nálgun þar sem unnið er með náttúrulegan stuðning jurta sem mannfólk hefur treyst á í þúsundir ára.
Kamillublóm (Chamomilla recutita), Fennel fræ (Foeniculum vulgare) og Piparmyntulauf (Mentha piperita).
Kamilla (Chamomilla recutita)
Hefur verið notuð hefðbundið til að styðja við ró og jafnvægi í meltingarvegi og viðhalda heilbrigðri slímhúð.
Piparmynta (Mentha piperita)
Þekkt fyrir að styðja við eðlilega meltingu og getur haft jákvæð áhrif þegar óþægindi eða þyngslatilfinning gera vart við sig.
Fennelfræ (Foeniculum vulgare)
Hafa verið notuð til að styðja við eðlilegt loftflæði í meltingarvegi og jafnvægi eftir máltíðir.
Setjið 1 teskeið í bolla af soðnu vatni. Látið standa í 20 mínútur. Sigtið áður en drukkið er. Drekkið 2-3 á dag
Varúð: Hættið notkun ef vart verður við óeðlileg einkenni. Ef þú ert ófrísk, með barn á brjósti eða tekur lyf, leitaðu ráða hjá lækni eða heilbrigðisstarfsfólki. Neytið ekki meira en ráðlagt er. "







