Maríustakkur jurtate
Maríustakkur jurtate
50 gÞekkt kvennajurt tengd jafnvægi tíðahrings og lífeðlisfræðilegri svörun kvenlíkamans. Gjarnan tekin reglulega sem hluti af markvissri rútínu.
Maríustakkur er ein þekktasta kvennajurt evrópskrar jurtamenningar og hefur lengi verið tengd við jafnvægi tíðahrings og lífeðlisfræðilega svörun kvenlíkamans.
Í hefðbundinni notkun hefur maríustakkur verið nýttur þegar áhersla er lögð á reglubundið flæði og innra jafnvægi, sérstaklega í tengslum við tíðahring og hormónatengdar breytingar. Hún hefur verið talin styðja við mýkri vöðvasvörun og náttúrulegt jafnvægi í grindarholi.
Jurtin hefur einnig verið notuð útvortis sem hluti af hefðbundinni nálgun að jafnvægi slímhúðar og innra umhverfis. Í jurtamenningu er hún talin fjölþætt jurt sem vinnur með náttúrulega bólgusvörun líkamans og styður við jafnvægi í meltingu og efnaskiptum.
Maríustakkur er gjarnan tekinn reglulega yfir lengri tíma sem hluti af markvissri jurtarútínu þar sem unnið er með aðlögun og jafnvægi fremur en skyndiverkun.
Maríustakkur er hluti af heildrænni nálgun þar sem unnið er með náttúrulegan stuðning jurta sem mannfólk hefur treyst á í þúsundir ára.
Virk efni: M.a. tannín, flavóníðar salisýlsýra og steinefnasölt.
Notkun: Setjið 2 teskeiðar í bolla af soðnu vatni og látið standa í 10 mínútur. Sigtið og drekkið 2 bolla á dag. Ekki drekka á tóman maga.
Varúð: Hættið notkun ef vart verður við óeðlileg einkenni. Ef þú ert ófrísk, með barn á brjósti eða tekur lyf, leitaðu ráða hjá lækni eða heilbrigðisstarfsfólki. Neytið ekki meira en ráðlagt er.







