Engifer hefur verið þekkt lengi sem virk lækningajurt og fyrir áhrif sín á einkenni hálsbólgu og kvefs. Öflug blanda sem styður ónæmiskerfið. Gæði og íslensk náttúra.
Fyrir ónæmiskerfið
C-vítamín er öflugt andoxunarefni sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir ónæmiskerfið. Vegna andoxunarvirkni C-vítamíns getur það barist gegn streitu, örverum og bakteríum og hjálpar líkamanum að verjast gegn sýkingum.
Húðin & framleiðsla kollagens
C-vítamín er mikilvægt næringarefni fyrir náttúrulega myndun kollagens í líkamanum og gegnir því mikilvægu hlutverki í viðhaldi vefja eins og brjósk og beina. Inntaka C-vítamíns skiptir einnig máli fyrir heilbrigði húðarinnar, þar sem kollagen er eitt helsta uppbyggingarefni húðarinnar sem viðheldur teygjanleika hennar. C-vítamín kemur einnig í veg fyrir að frumur líkamans verði fyrir ótímabærri öldrun.
Aðrir kostir C-vítamíns
C-vítamín gegnir einnig því hlutverki að styðja við taugakerfið, getur stuðlað að heilbrigði augna og aukið upptöku járns í líkamanum.
Ábyrgðaraðili: Náttúrusmiðjan ehf.