D-vítamín| Kröftug burnirót & d-vítamín 2000 AE
D-vítamín| Kröftug burnirót & d-vítamín 2000 AE
60 hylkiOrkurblandan: D-vítamín 2000 AE & íslensk burnirót. Gæði og íslensk náttúra: Orkablandan er blanda af d-vítamíni og íslenskri burnirót.D-vítamín er nauðsynlegt fyrir kalsíum- og fosfatbúskap beina og tanna. Burnirót er talin auka einbeitingu, líkamlegt og andlegt úthald og vinna gegn streitu.
D-vítamín orkublandan er einstök blanda af þínum daglega skammti (2ooo IU) af d-vítamíni og íslenskri burnirót. Styður við ónæmiskerfið, uppbyggingu líkamans og léttir lund.
D-vítamín
D-vítamín er nauðsynlegt næringarefni fyrir ónæmiskerfið en einnig fyrir kalsíum- og fosfat búskap beina og tanna. D-vítamín stuðlar einnig að heilbrigði vöðva, tauga- og hjartastarfsemi ásamt því að hafa jákvæð áhrif á svefngæði og lundarfar. Líkaminn getur framleitt D-vítamín sjálfur í húðinni fyrir tilstilli sólarljóss. Íslendingar þurfa að passa sérstaklega vel að líkaminn fái D-vítamín og það sérstaklega á veturnar þegar sólarljós er af skornum skammti.
Burnirót
Burnirót er svokölluð adaptógenísk jurt sem þýðir að virku efnin í jurtinni hafa þá eiginleika að geta dregið úr magni svokallaðra streituhormóna og getur haft jákvæð áhrif á streitutengda þreytu. Burnirót getur einnig haft jákvæð áhrif á myndun seretóníns sem er oftar en ekki kallað hamingjuhormónið. Burnirót er talin auka einbeitingu, almenna andlega líðan, líkamlegt og andlegt úthald.
Þessi blanda er sannkölluð orkublanda.
D-vítamínið í þessari vöru er framleitt úr sveppum og er þar af leiðandi vegan.
Innihald: Hvert hylki inniheldur 50 µg (2000 einingar) af D vítamíni (250% RDS), 280 mg burnirót og 60 mg magnesíum (10% RDS). Engin aukaefni. Hylkin eru úr jurtabeðmi.
Takið 1 hylki á dag með vatni.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn ná ekki til.







