Verum viðbúin

Lendingarsíður
1920X1080 09

Verum viðbúin

Það veitir öryggi að vera vel undirbúin þegar eitthvað óvænt kemur upp.

Sjúkrakassar

Góður undirbúningur veitir öryggi þegar eitthvað óvænt kemur upp. Rafmagnsleysi, vatnsleysi, óveður eða náttúruvá geta haft áhrif á daglegt líf með litlum fyrirvara. Þá er gott að eiga helstu nauðsynjar til heima svo þú getir sinnt þér og þínum fyrstu dagana, á meðan viðbragðsaðilar aðstoða þau sem mest þurfa á hjálp að halda.

Almannavarnir og Rauði krossinn hafa tekið saman lista yfir nauðsynjar sem hjálpa heimilum að vera sjálfbjarga í að minnsta kosti þrjá daga. Þar á meðal eru lyf, hreinlætisvörur og sjúkrakassi. Magn og innihald þarf að taka mið af fjölda heimilisfólks og þörfum hvers og eins.

Geymdu nauðsynjarnar á aðgengilegum stað þar sem auðvelt er að finna þær og farðu reglulega yfir birgðir og fyrningardagsetningar. Hjá Lyfju færð þú ráðgjöf og margar af þeim vörum sem gott er að eiga til heima.

Verkjalyf

Ofnæmislyf

Gott að eiga

Fyrir börnin

Vökvasölt