Heimilt er að selja takmarkað magn lyfsins í lausasölu, mest 20 stk. handa einstaklingi
Meklózín, virka efnið í Postafen, er notað við ógleði og uppköstum. Það dregur úr áhrifum histamíns í líkamanum, en histamín er boðefni sem veldur m.a. ofnæmiseinkennum. Meklózín hefur nokkuð sérhæfð áhrif á ógleði, en lítil áhrif á ofnæmiseinkenni. Lyfið er oftast notað við ferðaveiki.
Fullorðnir og börn eldri en 12 ára.
Við ógleði: 25 mg 2svar á dag.
Við ferðaveiki: 25 mg í senn. Lyfið er tekið 1-2 klst. fyrir brottför og síðan á 12 klst. fresti ef þörf krefur.