Tuzulby

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Örvandi lyf og lyf sem efla heilastarfsemi

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: MetýlfenídatSkráð 1. janúar 2026

Metýlfenídat, virka efnið í Tuzulby, er örvandi lyf skylt amfetamíni. Lyfið er hluti af meðferð við ofvirkni með athyglisbresti (ADHD) hjá börnum og unglingum á aldrinum 6-17 ára. Áhrif þess eru fyrst og fremst á miðtaugakerfið þar sem það eykur athygli, einbeitingu og getur hjálpað til við að hafa stjórn á hvatvísi. Vellíðan og aukin afköst fylgja oft töku lyfsins. Þar sem lyfið eykur einbeitingu og athygli getur það auðveldað ofvirkum börnum nám og samskipti við aðra.

Notkun á lyfjum

LyfjaformForðatuggutöflur.
Venjulegar skammtastærðir20-60 mg á dag, að morgni. Tuzulby verður að tyggja og ekki má gleypa það í heilu lagi né mylja.
Hversu langur tími uns verkun kemur framLyfið nær hámarksþéttni í blóð eftir 1-2 klst.
VerkunartímiUm 8 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðKoffein getur aukið örvandi áhrif lyfsins. Ekki neyta koffeins á meðan lyfið er tekið.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu. Lyfið getur valdið svefntruflunum sé það tekið seinni hluta dags eða að kvöldi.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsFráhvarfseinkenni geta komið fram þegar töku lyfsins er hætt og því þarf oft að minnka skammta smám saman. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturSkal hafa strax samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (543 2222). Ef vart verður við einkenni eins og mjög hraðan eða óreglulegan hjartslátt, hjartsláttarónot, verk fyrir brjósti, háan hita eða krampa skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.
LangtímanotkunFylgjast skal reglulega með ávinningi meðferðarinnar, vexti og matarlyst barna, geðheilsu og ástandi hjarta og æða. Venjulega er hægt að stöðva meðferð við eða eftir kynþroska. Þol getur myndast við áhrifum lyfsins.

Aukaverkanir

Algengar aukaverkanir eru yfirleitt vægar og hverfa oftast nær eftir nokkurra daga meðferð. Taugaveiklun og svefnleysi kemur stundum fyrir í upphafi meðferðar. Ef þetta hverfur ekki má vera að læknirinn minnki skammtinn eða breyti hvenær lyfið er tekið inn.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Hár blóðþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Hiti, liðverkir, hárlos
    Leitið til læknis
  • Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, syfja, munnþurrkur
    Leitið til læknis
  • Hósti, verkur í koki, bólga í nefkoki
    Leitið til læknis
  • Hreyfitruflanir
    Leitið til læknis
  • Kvíði, óróleiki, taugaveiklun, þunglyndi
    Leitið til læknis
  • Minnkuð matarlyst
    Leitið til læknis
  • Munnþurrkur
    Leitið til læknis
  • Niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Ógleði, uppköst, kviðverkir, meltingartruflanir
    Leitið til læknis
  • Svefnleysi, svefndrungi, sundl
    Leitið til læknis
  • Útbrot og mikill kláði
    Leitið til læknis
  • Vaxtarskerðing hjá börnum
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Blóð í þvagi
    Leitið strax til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Krampar
    Leitið strax til læknis
  • Ofvirkni eykst
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Gæta verður varúðar ef metýlfenídat er gefið samtímis öðrum lyfjum sem hafa áhrif á miðtaugakerfið, svo sem geðdeyfðarlyfjum, flogaveikilyfjum og sefandi lyfjum. Athuga þarf skammtastærðir blóðþynnandi lyfja ef Concerta er tekið þeim samtímis. Lyfið getur dregið úr verkun blóðþrýstingslækkandi lyfja.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með einhvern hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með hækkaðan augnþrýsting eða gláku
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
  • þú sért með Tourettes heilkenni
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú eigir við áfengis- eða fíkniefnavandamál að stríða
  • þú sért með geðsjúkdóm
MeðgangaLyfið skal ekki nota á meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Eldra fólkLyfið er ekki ætlað eldra fólki.
AksturLyfið getur haft áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiEkki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirBannað í keppni.
FíknarvandamálConcerta getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.