Escitalopram STADA
Lyfseðilsskylt
Escitalopram STADA er notað til að meðhöndla alvarleg þunglyndisköst, ofsahræðslu, félagsfælni og þráhyggju- og árátturöskun. Escítalópram, virka efni lyfsins, hefur sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila. Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumna, sem hafi þetta boðefni að geyma, orsaki m.a. geðdeyfð. Eldri geðdeyfðarlyf eru ólík escítalópram, þau eru ekki eins sérhæfð og það og hafa líka áhrif á fleiri boðefni. Lyfið er tekið inn einu sinni á dag, án tillits til máltíða. Svo virðist sem escítalópram og skyld lyf virki svipað á einkenni geðdeyfðar og hin eldri. Þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Nýrri lyfin eru þó ekki með eins róandi verkun og þau eldri, og eru líka laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Einnig er minni hætta á eitrunum af völdum nýrri lyfjanna. Aftur á móti er líklegra að escítalópram og skyld lyf valdi svefntruflunum, minnkaðri kynhvöt eða kyngetu og ógleði. Flestar þessar aukaverkanir eru verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum. Escítalópram er náskylt cítalópram (virka efnið í Cipramil og Oropram).

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 5,1 mm |
| Styrkur | 5 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru algengastar á fyrstu tveimur vikum meðferðar en yfirleitt dregur úr þeim við áframhaldandi meðferð.
- Aukin eða minnkuð matarlystLeitið til læknis
- GeisparLeitið til læknis
- Kvíði, eirðarleysiLeitið til læknis
- Minnkuð kynhvöt, skortur á fullnægingu (konur)Leitið til læknis
- Munnþurrkur, aukin svitamyndunLeitið til læknis
- Náladofi, skjálftiLeitið til læknis
- Óeðlilegir draumarLeitið til læknis
- Ógleði, niðurgangur og hægðatregðaLeitið til læknis
- Svefnleysi, svefnhöfgiLeitið til læknis
- SvimiLeitið til læknis
- SýkingarLeitið til læknis
- Truflun á sáðláti, getuleysiLeitið til læknis
- UppköstLeitið til læknis
- Vöðvaverkir, liðverkirLeitið til læknis
- Þreyta, hitiLeitið til læknis
- HjartsláttartruflanirLeitið til læknis
- KramparLeitið til læknis
- Útbrot og kláðiLeitið til læknis
- Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettirLeitið strax til læknis
- Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagiLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Jóhannesarjurt og ginkgo geta haft áhrif á virkni lyfsins. Hjá sjúklingum með sykursýki getur meðferð með SSRI lyfjum haft áhrif á sykurstjórnun (blóðsykurslækkun eða blóðsykurshækkun). Nauðsynlegt getur verið að aðlaga skammta af insúlíni og/eða sykursýkilyfjum til inntöku.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með flogaveiki
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
- þú hafir átt við oflæti (manía) að stríða
- þú hafir sögu um blæðingartilhneigingu

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 5,1 mm |
| Styrkur | 5 mg |








