Míron

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Geðdeyfðarlyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G/0: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: MirtazapínSkráð 1. júlí 2003

Míron er geðdeyfðarlyf. Mirtazapín, virka efni lyfsins, er efnafræðilega skylt geðdeyfðarlyfinu míanseríni en áhrif þessara tveggja lyfja á taugaboðefni í heila eru nokkuð ólík. Mirtazapín hefur áhrif á geðdeyfð og virkar jafnframt róandi. Mirtazapín hefur sambærileg áhrif og önnur geðdeyfðarlyf, það bætir skap og matarlyst, eykur líkamlega virkni og áhuga á daglegu lífi. Þessi áhrif koma aðeins fram hjá sjúklingum með geðdeyfð en sjást ekki ef heilbrigðir taka lyfið. Mirtazapín virkar auk þess róandi og hentar vel ef svefntruflanir fylgja geðdeyfð.

Tafla 30 mg Tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir15-45 mg á dag, venjulega að kvöldi fyrir svefn, eða kvölds og morgna. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má ekki tyggja þær.
Hversu langur tími uns verkun kemur framUm 1-2 vikur, full verkun næst á 2-4 vikum.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsSjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins hættir. Ekki hætta að taka lyfið nema í samráði við lækni. Ekki hætta töku lyfsins snögglega.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunMeðferð stendur venjulega í a.m.k. 6 mánuði.

Aukaverkanir

Aukin matarlyst og þyngdaraukning er mest áberandi á fyrstu vikum meðferðar, en síðan dregur úr þessari aukaverkun. Aðrar aukaverkanir eru mun sjaldgæfari.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Aukin matarlyst, þyngdaraukning
    Leitið til læknis
  • Bjúgur
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, svimi, þreyta
    Leitið til læknis
  • Liðverkir, vöðvaverkir, bakverkir
    Leitið til læknis
  • Munnþurrkur
    Leitið til læknis
  • Óeðlilegir draumar
    Leitið til læknis
  • Ógleði, uppköst, niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Rugl, kvíði, svefnleysi
    Leitið til læknis
  • Svefndrungi, róandi áhrif
    Leitið til læknis
  • Svefnhöfgi, sundl, skjálfti
    Leitið til læknis
  • Svimi þegar staðið er upp
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Skapgerðarbreytingar
    Leitið til læknis
  • Útbrot
    Leitið til læknis
  • Gula
    Leitið strax til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Krampar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Lyfið getur aukið slævandi áhrif róandi lyfja.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með lágan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú hafir fengið hjartaáfall eða sért með hjartasjúkdóm
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með stíflu í þörmum
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið svima og skert viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiEkki neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Hreyfigeta skerðist og sljóvgandi áhrif lyfsins aukast ef áfengis er neytt samtímis lyfjatöku. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.