Kaffi - er það hollt eða ekki?

Kaffi - er það hollt eða ekki?
Ristuð kaffibaun hefur verið notuð síðan á sautjándu öld í frekar miklum mæli. Á 9. öld uppgötvaði einhver í Eþíópíu kaffi, að það veitti fólki kraft og orku. Kaffið varð síðan útbreiddara smátt og smátt í hinum vestræna heimi. Miðað við hvað var að gerast í Evrópu, þá hefur kaffi líklega komið hingað til Íslands á 18. öld eins og finna má í heimildum þar sem bóndi titlaði sig einnig sem grasalækni í litlu grasakveri frá 1890, þar kvartaði hann yfir kaffi. Honum blöskraði kaffidrykkjan á Íslendingum og fannst að þeir ættu að nota meira af íslenskum lækningajurtum, sem væri örugglega betra en þetta kaffisull. Honum tókst greinilega ekki að fá fólk til að drekka meira af jurtatei, því kaffi er enn þjóðardrykkur.
Ég get séð þetta fyrir mér hvernig kaffidrykkjan breiddist út hér á landi eða á tímum sem við Íslendingar erum bara að reyna að lifa af. Eiga mat og halda á okkur hita sem þýðir að margir hafi þjáðst af næringarskorti og verið þreyttir svo kemur drykkur sem getur bara skotið orkunni upp. Auðvitað grípur fólk þetta. En sökum þess að fólk kann sér ekki hóf þá er það ofnotað, oft á tíðum. Alls ekki alltaf, sumir í dag drekka reyndar fáa en góða bolla.
Svo komum við að öðru og það eru allar rannsóknirnar sem hafa verið gerðar á kaffi tengt heilsu. Það er margt merkilegt sem kemur þar fram.
Kaffi á að vera
- Bólgueyðandi
- Á að örva hugann
- Halda okkur meira vakandi
- Minnka líkur á hjartaáföllum
- Minnka bólgur í lifur
- og fleira.
Frá mér horfir þetta þannig við að enginn sé eins. Því er misjafnt hvort kaffi gerir þér gott eður ei. Það fer allt eftir því hvernig líkami þinn virkar.
Jú, kaffi er planta uppfull af andoxunarefnum og öðrum plöntuefnum sem gera þér gott, en einnig eru þar að finna önnur eiturefni eins og KOFFÍN. Það er misjafnt hvort er verra fyrir ykkur. Þetta er byggt á reynslu, fólk hefur hætt að drekka kaffi í 25 ár og margt gott hefur gerst þegar það er laust við það.
Koffín og eiturefni
KOFFÍN
það er ekki gott fyrir fólk í örmögnunarástandi. Það þreytir nýrnahetturnar og fólk festist í þreytunni frekar. Það fer orka í þessa orku sem kemur sem fólk á svo ekki til. Þeir sem eru með viðkvæmt taugakerfi ættu alls ekki að drekka kaffi.
EITUREFNI
Það er til fólk sem er með bilað afeitrunarferli það ætti heldur ekki að drekka kaffi. Fólk með gigt er eiginlega alltaf með bilað afeitrunarferli og fólk sem verður lasið vegna myglu.
Kæra fólk, ég er ekki að segja að allir eigi að vera heilagir og snerta ekki kaffi. Heldur hlusta á líkamann, prófið að drekka ekkert kaffi í nokkra daga og sjáið hvernig ykkur líður með það og svo getið þið byrjað aftur. Ef ykkur líður betur án þess í einn dag, haldið því þá þannig.
Munið, að alls kyns jurtate er í boði bæði hjá Jurtaapótekinu og annars staðar. Skoðið úrvalið. Eða tínið það sjálf. Kaupið grasakverið hennar Önnu Rósu, sjáið hvaða jurtir henta ykkur.
Alla vega ekki ánetjast kaffi, drekkið það ánægjunnar vegna.
Góðar heilsukveðjur,
Kolbrún grasalæknir




































