Monoprost
Lyfseðilsskylt
Monoprost er notað við gláku. Gláka stafar af ójafnvægi milli framleiðslu á augnvökva og frárennslis hans, með þeim afleiðingum að vökvinn safnast fyrir og þrýstingur í auganu hækkar. Þegar þrýstingurinn hækkar geta æðar til sjónhimnu þrengst og blóðflæði um þær minnkað. Ef ekki er brugðist við í tíma getur það valdið skemmdum í sjónhimnunni og jafnvel blindu. Gláka er flokkuð í tvær tegundir, þrönghorns- og gleiðhornsgláku, eftir því hvernig frárennsli augnvökvans er hindrað. Latanóprost eykur frárennsli augnvökva og dregur með því úr þrýstingi í auganu. Monoprost er notað við háum augnþrýstingi og gleiðhornsgláku.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
- Erting í augum, roði í augumLeitið til læknis
- Litabreytingar í lithimnuLeitið til læknis
- Roði og bólga í augum eða augnlokumLeitið til læknis
- ÚtbrotLeitið til læknis
- Verkur fyrir brjósti, mæðiLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Engar nákvæmar upplýsingar liggja fyrir um milliverkanir. Ef önnur staðbundin augnlyf eru notuð samtímis, þurfa að líða a.m.k. 5 mín. á milli ídreypinga.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með astma
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú notir augnlinsur








