Movicol Junior Neutral

Hægðalyf | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Natríumhýdrógenkarbónat Makrógól Kalíumklóríð Natríumklóríð

Markaðsleyfishafi: Norgine | Skráð: 1. nóvember, 2018

Movicol Junior Neutral er mixtúruduft, lausn í stakskammtaíláti. Lyfið er notað til meðferðar á langvinnri hægðatregðu hjá börnum á aldrinum 2-11 ára. Movicol Junior kemur jafnvægi á þarmahreyfingar jafnvel þótt hægðatregðan hafi staðið yfir lengi. Það hjálpar við að leysa upp harðar og inniklemmdar hægðir.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Mixtúruduft, lausn í stakskammtaíláti.

Venjulegar skammtastærðir:
Venjulegur upphafsskammtur er 1 stakskammtaílát á dag fyrir börn á aldrinum 2-6 ára og 2 stakskammtaílát á dag fyrir börn á aldrinum 7-11 ára. Skammta má auka eða minnka í þeim tilgangi að ná reglubundnum mjúkum hægðum. Hámarksskammtur má ekki vera hærri en 4 stakskammtaílát á dag. Meðferð má ekki standa yfir lengur en í 4 vikur. Hvernig blanda skal lausnina - Opnið pokann og hellið innihaldinu í glas. Bætið 62,5 ml af vatni í glasið (¼ glas). Hrærið vandlega í þar til duftið er uppleyst og Movicol Junior Neutral lausnin er tær eða örlítið skýjuð. Barnið getur síðan drukkið lausnina.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Fáeinir klukkutímar.

Verkunartími:
Fáeinir klukkutímar.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Ef barnið getur ekki drukkið Movicol Junior Neutral um leið og búið er að leysa það upp skal geyma það í lokuðu íláti í kæli (2-8°C). Fargið lausninni ef hún er ekki notuð innan 24 klst.

Ef skammtur gleymist:
Taktu skammtinn um leið og þú manst eftir því. Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að taka.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er ekki tekið að staðaldri.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Hafa skal umbúðirnar meðferðis. Einkenni ofskömmtunar eru miklir kviðverkir og uppþemba, mikið vökvatap af völdum niðurgangs eða uppkasta.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar nema samkvæmt ráðleggingum læknis.


Aukaverkanir

Aukaverkanir lyfsins eru vægar og tiltölulega sjaldgæfar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Magaverkir          
Ógleði          

Milliverkanir

Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um öll önnur lyf sem eru notuð, hafa nýlega verið notuð eða kynnu að verða notuð. Ef þú tekur önnur lyf, skaltu taka þau a.m.k. einni klukkustund áður en þú tekur Movicol eða a.m.k. einni klukkustund síðar, því þau gætu annars skolast í gegnum meltingarveginn og virka þá ekki sem skyldi.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Nota má Movicol á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Nota má Movicol við brjóstagjöf.

Börn:
Lyfið er ætlað börnum á aldrinum 2-11 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Movicol Junior hefur engin eða óveruleg áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Þegar þú tekur Movicol Junior skaltu halda áfram að drekka mikið vatn. Vökva innihaldið í Movicol lausninni kemur ekki í staðin fyrir venjulega inntöku vökva. B. Gæta skal sérstakrar varúðar við notkun Movicol Junior ef um er að ræða hjartavandamál Fylgið sérfyrirmælum í kafla 3 Ef þú færð einkenni sem hafa áhrif á vökvajafnvægi (til dæmis vökvasöfnun, mæði, aukna þreytu, vökvatap, hjartabilun, aukna þörf fyrir þvagræsilyf), skaltu samstundis hætta töku Movicol og hafa samband við lækninn. Ef þörf er á daglegri notkun hægðalyfja skal athuga orsakir langvinnrar hægðatregðu.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.