Zarator

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Blóðfitulækkandi lyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: AtorvastatínSkráð 1. mars 1998

Atorvastatín, virka efnið í Zarator, hefur blóðfitulækkandi áhrif. Það tilheyrir flokki lyfja sem hindrar myndun á kólesteróli í lifur og veldur því að kólesteról og fita í blóði minnkar. Lyfið er gefið sjúklingum sem hafa mikið kólesteról í blóði þegar breytingar á mataræði og hreyfingu hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Halda á áfram að borða kólesterólsnautt fæði meðan á meðferð með atorvastatíni stendur. Lyfið hefur einnig sýnt árangur í þá veru að lækka kólesteról hjá sjúklingum með arfhreina (homozygot), ættgenga kólesterólhækkun. Atorvastatin er líka notað til að fyrirbyggja hjarta- og æðasjúkdóma hjá einstaklingum sem eru í hættu á að fá hjartaáfall.

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir10-80 mg í senn einu sinni á dag.
Hversu langur tími uns verkun kemur framUm 2-4 vikur.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðMinni fituneysla er hluti af meðferðinni. Greipaldinsafi getur haft áhrif á niðurbrot lyfsins í líkamanum, og því er óæskilegt að neyta greipaldinsafa á meðan lyfið er tekið.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal strax hafa samband við lækni.
LangtímanotkunNotkun lyfsins í lengri tíma getur haft áhrif á lifrarstarfsemi. Æskilegt er að fylgst sé reglulega með lifrarstarfsemi og vöðvastyrk á meðan lyfið er tekið.

Aukaverkanir

Lyfið þolist yfirleitt vel. Aukaverkanir eru almennt vægar og ganga yfir við áframhaldandi töku lyfsins.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Bakverkir, liðbólga
    Leitið til læknis
  • Blóðnasir
    Leitið til læknis
  • Bólga í nefi
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, ógleði
    Leitið til læknis
  • Niðurgangur, hægðatregða og meltingartruflanir
    Leitið til læknis
  • Of hár blóðsykur
    Leitið til læknis
  • Útbrot, kláði
    Leitið til læknis
  • Verkir í koki og barkakýli
    Leitið til læknis
  • Vindgangur
    Leitið til læknis
  • Vöðvakrampar
    Leitið til læknis
  • Vöðvaverkir, liðverkir
    Leitið til læknis
  • Verkur fyrir brjósti
    Leitið strax til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Verkir, eymsli og máttleysi í vöðvum
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með vanvirkan skjaldkirtil
  • þú hafir einhvern tíma átt við áfengisvandamál að stríða
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með vöðvakvilla (myopathy)
MeðgangaLyfið getur valdið fósturskemmdum og því á ekki að nota það á meðgöngu.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur hverfandi áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiGetur aukið líkur á lifrarvandamálum. Gæta ætti hófsemi í áfengisdrykkju.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.