Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum

Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka

Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Enalapríl, HýdróklórtíazíðSkráð 1. júní 2019

Lyfið inniheldur tvö virk efni, enalapríl og hýdróklórtíazíð og er notað við háum blóðþrýstingi þegar nægilegur árangur hefur ekki náðst með einu lyfi og nauðsynlegt þykir að nota tvö lyf. Enalapríl tilheyrir flokki lyfja sem kallast ACE-hemlar. Lyf í honum hamla myndun á angíótensíni II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Lyfin hindra einnig niðurbrot æðavíkkandi efnis í líkama, bradýkíníns. Þau lækka því blóðþrýsting með því að víkka út æðar og skilja vatn út úr líkamanum. Hýdróklórtíazíð flokkast til þvagræsilyfja. Lyfið lækkar blóðþrýsting, eykur þvagmyndun í nýrum og losar líkamann við vökva. Samfara aukinni vatnslosun eykur hýdróklórtíazíð útskilnað margra salta, aðallega kalíums. Enalapríl getur hins vegar dregið úr þessu kalíumtapi. Í lyfinu eru þessi tvö virku efni gefin saman til þess að ná fram enn meiri lækkun á blóðþrýstingi en mögulegt væri þegar þau eru gefin hvort í sínu lagi.

Tafla 20/12,5 mg Tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir1 tafla á dag. Hver tafla inniheldur 20 mg enalapríl og 12,5 mg hýdróklórtíazíð.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram1-2 klst. Hámarksáhrif á blóðþrýsting koma fram eftir 4-6 klst.
Verkunartími24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsÁstand getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Æskilegt er að minnka skammta smám saman frekar en að hætta skyndilega. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturEf of stór skammtur af lyfinu hefur verið tekinn, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
LangtímanotkunYfirleitt án vandkvæða. Æskilegt er að fylgst sé reglulega með nýrnastarfsemi og jafnvægi salta í líkamanum.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru svimi og þreyta.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Getuleysi
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, svimi, þreyta
    Leitið til læknis
  • Kviðverkir, niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Ógleði
    Leitið til læknis
  • Truflun á bragðskyni
    Leitið til læknis
  • Vöðvasamdráttur
    Leitið til læknis
  • Þokusýn
    Leitið til læknis
  • Þunglyndi
    Leitið til læknis
  • Þurr hósti
    Leitið til læknis
  • Lágur blóðþrýstingur, yfirlið
    Leitið strax til læknis
  • Mæði
    Leitið strax til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Hjartsláttartruflanir
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Hýdróklórtíazíð getur valdið kalíumtapi úr líkamanum en enalapríl getur dregið úr þessu tapi. Æskilegt er að fylgjast með kalíumþéttni í blóði hjá sjúklingum sem taka lyfið. Samtímis notkun náttúrulyfsins ginkgo getur valdið hærri blóðþrýstingi.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með gigt
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið þvagsýrugigt
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaLyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkVenjulegir skammtar eru yfirleitt notaðir en þó getur þurft að nota minni skammta.
AksturLyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiÁfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirBannað í og utan keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.