Softacort

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Augn- og eyrnalyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Hýdrókortisón_Skráð 1. maí 2018

Lyfið inniheldur hýdrókortisón. Hýdrókortisón er sterahormón sem myndast í nýrnahettunum. Það bælir myndun efna þeirra sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið og dregur með þessu úr bólgum, kláða og ofnæmiseinkennum. Sterar sem eru notaðir í húðlyf skiptast gróflega í 4 flokka eftir styrkleika. Hýdrókortisón er vægur steri og tilheyrir flokki 1, vægasta flokknum. Lyfið er notað við vægum ofnæmis- eða bólgusjúkdómum í augnslímhúð sem eru ekki smitandi

Notkun á lyfjum

LyfjaformAugndropar án rotvarnarefna.
Venjulegar skammtastærðirAugndropar: 1-2 dropar í sýkt auga 2-4 sinnum á dag.
Hversu langur tími uns verkun kemur framMisjafnt eftir ástandi sjúklings.
VerkunartímiMisjafn eftir ástandi sjúklings.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistNotaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsNotaðu lyfið svo lengi sem læknir segir fyrir um, líka þótt einkenni séu ekki lengur til staðar. Ef notkun er hætt of snemma getur sýking náð sér aftur á strik.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunLyfið er nær eingöngu notað í skamman tíma í senn. Hámarksmeðferðarlengd er 14 dagar.

Aukaverkanir

Þegar breiðvirk sýklalyf eru notuð fylgir alltaf hætta á sýkingu af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu.

Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Erting í augum
    Leitið til læknis
  • Roði og bólga í augum eða augnlokum
    Leitið til læknis

Milliverkanir

Engar milliverkanir eru þekktar við þetta lyfjaform. Ef önnur staðbundin augnlyf eru notuð samtímis, þurfa að líða a.m.k. 5 mín. á milli ídreypinga.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með gláku
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaSoftacort er ekki ætlað til notkunar á meðgöngu, nema notkun þess sé nauðsynleg.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað fyrir börn.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturEins og á við um önnur augnlyf getur notkun augndropa valdið tímabundnum sjóntruflunum.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.