Fluoxetin WH
Lyfseðilsskylt
Flúoxetín WH, sem inniheldur virka efnið flúoxetín, er geðdeyfðarlyf. Það tilheyrir frekar nýjum flokki geðdeyfðarlyfja sem hafa sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila. Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumna sem nota þetta boðefni séu ein af orsökum geðdeyfðar. Eldri geðdeyfðarlyf eru ekki eins sérhæfð og hafa áhrif á fleiri boðefni. Flúoxetín og skyld lyf virðast hafa svipaða virkni og eldri lyfin á einkenni geðdeyfðar, þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Nýrri lyfin hafa þó ekki eins róandi verkun og eru laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Einnig er minni hætta á eitrunum af völdum nýrri lyfjanna. Aftur á móti er líklegra að flúoxetín valdi einkennum eins og taugaveiklun, spennu og svefntruflunum, auk þess sem ógleði er algeng aukaverkun þess. Flúoxetín er notað við geðdeyfð, þráhyggjusýki, matgræðgiköstum (bulimia nervosa) og fyrirtíðavanlíðan.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Ógleði kemur fram hjá um 10% þeirra sem taka lyfið. Um 10-15% þeirra sem taka lyfið finna fyrir taugaveiklun og svefntruflunum í byrjun meðferðar. Algengt er að aukaverkanir í upphafi hverfi þegar meðferð er haldið áfram.
- Aukin eða minnkuð matarlystLeitið til læknis
- BlæðingatruflanirLeitið til læknis
- Breytt bragðskynLeitið til læknis
- Hiti, hrollurLeitið til læknis
- Höfuðverkur, svimi, þreytaLeitið til læknis
- Hraður hjartsláttur, hjartsláttarónotLeitið til læknis
- Kviðverkir, hægðatregðaLeitið til læknis
- Meltingartruflanir, vindgangurLeitið til læknis
- Minnkuð kynhvöt eða getuleysiLeitið til læknis
- Munnþurrkur, aukin svitamyndunLeitið til læknis
- Ógleði, uppköst, niðurgangurLeitið til læknis
- SjóntruflanirLeitið til læknis
- SkjálftiLeitið til læknis
- Taugaveiklun, óróleiki, svefntruflanirLeitið til læknis
- Útbrot og mikill kláðiLeitið til læknis
- ÞyngdartapLeitið til læknis
- KramparLeitið strax til læknis
- ÖndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Jóhannesarjurt og ginkgo geta haft áhrif á virkni lyfsins. Hjá sjúklingum með sykursýki getur meðferð með SSRI lyfjum haft áhrif á sykurstjórnun (blóðsykurslækkun eða blóðsykurshækkun). Nauðsynlegt getur verið að aðlaga skammta af insúlíni og/eða sykursýkilyfjum til inntöku.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þ ú takir einhver önnur lyf
- þú sért með blæðingasjúkdóm








