Duloxetin W&H
Lyfseðilsskylt
Duloxetin er notað til að meðhöndla þunglyndi, kvíðaröskun eða til að meðhöndla taugaverki vegna sykursýki. Einkenni taugaverkja geta verið sviði, stingir, náladofi og verkir. Svæðið getur orðið tilfinningalaust og utanaðkomandi áhrif eins og snerting, hiti, kuldi eða þrýstingur geta valdið sársauka. Talið er að duloxetín, virka efnið í lyfinu, verki á sársauka með því að efla sársaukahamlandi brautir innan miðtaugakerfisins. Duloxetín hefur sambærileg áhrif og önnur geðdeyfðarlyf á þunglyndi, það bætir skap, eykur líkamlega virkni og áhuga á daglegu lífi með því að hafa áhrif á serótónín og noradrenalín sem eru taugaboðefni í heila. Þessi áhrif koma aðeins fram hjá sjúklingum með geðdeyfð en sjást ekki ef heilbrigðir taka lyfið.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir lyfsins eru slappleiki, ógleði, munnþurrkur, hægðatregða, svimi, þreyta og svefntruflanir en yfir 10% finna fyrir þeim.
- Hitakóf, aukin svitamyndun, nætursvitiLeitið til læknis
- Lystarleysi, þyngdartapLeitið til læknis
- Minnkuð kynhvöt, ristruflanir, fá ekki fullnæginguLeitið til læknis
- MunnþurrkurLeitið til læknis
- Niðurgangur, hægðatregðaLeitið til læknis
- Ógleði og uppköstLeitið til læknis
- SjóntruflanirLeitið til læknis
- Spenna, skjálfti, geisparLeitið til læknis
- Svimi, þreyta, svefntruflanirLeitið til læknis
- VöðvasamdrátturLeitið til læknis
- Þvagtregða hjá körlumLeitið til læknis
Milliverkanir
Fólk sem reykir hefur um 50% lægri styrk af lyfinu í blóði samanborið við þá sem reykja ekki. Því gæti þurft að auka skammta ef svörun við lyfinu er ekki nægjanleg í venjulegum skömmtum. Gæta skal varúðar þegar lyfið er tekið samhliða öðrum lyfjum og efnum sem verka á miðtaugakerfið, m.a. áfengi, náttúrulyfinu Jóhannesarjurt og róandi lyfjum. Virka efnið duloxetín er að finna í öðrum lyfjum með aðrar ábendingar. Forðast skal að taka þessi lyf saman.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með gláku
- þú sért með háan blóðþrýsting eða hjartasjúkdóm
- þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú reykir
- þú takir einhver önnur lyf
- þú hafir sögu um blæðingartilhneigingu
- þú hafir greinst með geðhæð eða geðhvarfasýki








