Tanonalla

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Verkjalyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Oxýkódon, NaloxónSkráð 1. apríl 2025

Tanonalla er notað við miklum eða mjög miklum verkjum en er ekki ætlað til að meðhöndla bráðaverki. Targin inniheldur oxýkódonhydróklóríð, sem er flokkað sem náttúrulegur ópíumalkalóíði, og naloxónhýdróklóríð. Lyfið hefur áhrif á miðtaugakerfið og hindrar að sársaukaboð berist þangað. Það hefur aðallega verkjastillandi og róandi áhrif. Auk þessara áhrifa getur lyfið dregið úr hósta. Ávanahætta er nokkur og sé lyfið notað til langs tíma getur myndast þol við áhrifum þess. Tanonalla er forðatafla sem inniheldur líka Naloxón til að draga úr hægðatregðu sem er ein af aukaverkunum ópíum alkalóíða. Tanonalla er einnig notað sem annar valkostur til meðferðar við einkennum hjá sjúklingum með alvarlegt eða mjög alvarlegt fótaóeirðarheilkenni, þegar meðferð með dópamínvirkum lyfjum er ekki möguleg.

Notkun á lyfjum

LyfjaformForðatöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirSkammtar eru einstaklingsbundnir og háðir því hversu miklir verkirnir eru og fyrri notkun verkjalyfja. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má hvorki mylja þær né tyggja.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram1-1½ klst.
VerkunartímiUm 12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymsluþol eftir að umbúðirnar eru fyrst opnaðar eru 3 mánuðir.
Ef skammtur gleymistEf það eru meira en 8 klukkustundir í næsta skammt skaltu taka skammtinn sem fyrst og haltu svo áfram með vanalega skammtaáætlun. Ef næsti venjulegi skammtur er innan 8 klukkustunda skaltu taka skammtinn sem gleymdist og bíða svo í minnst 8 klst þar til þú tekur næsta skammt. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHafðu samband við lækni. Ef ástæður eru ekki lengur fyrir hendi fyrir því að lyfið var upphaflega gefið má hætta töku þess. Það gætu komið fram fráhvarfseinkenni þegar töku þess er hætt og því verður þú að minnka dagsskammtinn smám saman.
Ef tekinn er of stór skammturEf of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal strax hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Í alvarlegum tilvikum geta komið fram meðvitundarleysi (dá), lungnabjúgur og blóðrásarbilun, en það getur stundum verið lífshættulegt.
LangtímanotkunTanonalla skal ekki gefa lengur en bráða nauðsyn ber til. Ef þörf er á langtímameðferð skal fylgjast vel og reglulega með sjúklingnum til að ákvarða frekari meðferð.

Aukaverkanir

Öndunarbæling er ein alvarlegasta aukaverkun lyfsins og er líklegri hjá öldruðum og mikið veikum sjúklingum.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Kviðverkir, niðurgangur og hægðatregða
    Leitið til læknis
  • Minnkuð matarlyst
    Leitið til læknis
  • Ógleði, uppköst, meltingartruflanir
    Leitið til læknis
  • Öndunarerfiðleikar
    Leitið til læknis
  • Slævandi verkun
    Leitið til læknis
  • Þróttleysi, svefnleysi
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Krampar eða flog
    Leitið til læknis
  • Kvíði, óróleiki, taugaveiklun, þunglyndi
    Leitið til læknis
  • Minnkuð kynhvöt
    Leitið til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Róandi lyf, svefnlyf, þunglyndislyf, sefandi lyf, sum ofnæmislyf, uppsölulyf og aðrir ópíóíðar eða áfengi, geta eflt aukaverkanir, einkum öndunarbælingu. Sefandi lyf og sum ofnæmislyf, uppsölulyf og parkinsonslyf geta aukið á andkólínvirkar aukaverkanir, svo sem hægðatregðu, munnþurrk eða truflanir á þvaglátum. Náttúrulyfin Jóhannesarjurt og valeriana geta aukið sefandi áhrif lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með Addisonssjúkdóm
  • þú sért með blóðþrýstingsvandamál
  • þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með lungnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú sért með stækkaðan blöðruhálskirtil
  • þú sért með vanvirkan skjaldkirtil
  • þú hafir einhvern tíma misnotað áfengi eða lyf
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með flogaveiki eða hafir fengið flog
  • þú sért með aukinn heilaþrýsting
  • þú sért með eða hefur fengið brisbólgu
  • þú sért með þarmalömun
MeðgangaLyfið getur haft áhrif á fóstur og/eða nýbura.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólkSkammtar eru einstaklingsbundnir.
AksturHafa skal samráð við lækni um það hvort leyfilegt sé að aka bíl vegna þess að lyfið getur skert hæfni til aksturs.
ÁfengiGetur aukið á aukaverkanirnar, einkum öndunarbælingu. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirBannað í keppni.
FíknarvandamálTanonalla getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.
AnnaðTóma stoðgrind (forðataflan eftir að lyfið hefur losnað úr henni) má finna í hægðum.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.