Zubsolv
Lyfseðilsskylt
Zubsolv er lyf til að meðhöndla ópíóíðafíkn, innan ramma læknisfræðilegrar, félagslegrar og sálfræðilegrar meðferðar. Lyfið inniheldur tvö efni, búprenorfín og naloxón. Búprenorfín er lyf í flokki ópíóíða og líkist morfíni. Naloxón er efni sem að blokkar ópíóíða viðtaka og er því mótefni gegn ópíóíðalyfjum. Naloxón er til staðar í Zubsolv til að koma í veg fyrir misnotkun lyfsins í æð. Þegar naloxón er gefið sjúklingum með ópíóíðafráhvörf til inntöku eða undir tungu hefur það lítil sem engin lyfjafræðileg áhrif. Hins vegar, þegar naloxón er gefið í bláæð koma greinileg ópíóíðablokkandi áhrif og fráhvarfseinkenni í ljós. Þetta hefur fælandi áhrif á notkun lyfsins í bláæð. Zubsolv er ætlað fullorðnum og unglingum eldri en 15 ára sem hafa samþykkt að gangast undir meðferð gegn lyfjafíkn.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | 1.4 |
| Gerð | Tungurótartafla |
|---|---|
| Lögun | Þríhyrnd |
| Deilistrik | Nei |
| Lengd | 7,2 mm |
| Styrkur | 1,4/0.36 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanirnar sem koma fram eru hægðatregða og einkenni sem almennt tengjast fráhvarfi lyfja. Listinn hér að neðan er ekki tæmandi, sjá fylgiseðil fyrir allar þekktar aukaverkanir.
- Aukin táramyndunLeitið til læknis
- Hækkaður blóðþrýstingurLeitið til læknis
- Höfuðverkur, ógleði, mikil svitamyndunLeitið til læknis
- Liðverkir, bakverkir eða vöðvaverkirLeitið til læknis
- Minnkuð kynhvötLeitið til læknis
- SvefnleysiLeitið til læknis
- Sýkingar, flensulík einkenniLeitið til læknis
- Þroti í höndum og fótumLeitið til læknis
- Þunglyndi, kvíði, tilfinningatruflanir, þyngdartapLeitið til læknis
- Veruleg þreyta, kláði, gulnun húðar og augnaLeitið til læknis
- Bráðaofnæmisviðbrögð/lost, ofsakláðiLeitið strax til læknis
- OfskynjanirLeitið strax til læknis
- Syfja, þokusýn, þvoglumæli, óskýr hugsun eða hægari öndun en vanalegaLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Lyfið getur valdið fráhvarfseinkennum ópíóíða ef það er tekið of fljótt eftir töku ópíóíða. Líða þurfa að minnsta kosti 6 klst. frá notkun ópíóíða með skammtímavirkni (t.d. morfíns, heróíns) og að minnsta kosti 24 klst. frá notkun ópíóíða með langtímavirkni eins og metadóns.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- þú sért með lágan blóðþrýsting
- þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með þvagfærasjúkdóm
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért undir áhrifum áfengis eða vímuefna
- þú sért með skjaldkirtilssjúkdóm
- þú eigir við öndunarerfiðleika að stríða
- þú sért með heilasjúkdóm

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | 1.4 |
| Gerð | Tungurótartafla |
|---|---|
| Lögun | Þríhyrnd |
| Deilistrik | Nei |
| Lengd | 7,2 mm |
| Styrkur | 1,4/0.36 mg |








