Cinacalcet Ratiopharm (afskráð des 2022)
Lyf sem verka á kalsíumjafnvægi líkamans | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Cínacalcet
Markaðsleyfishafi: Ratiopharm | Skráð: 1. júlí, 2018
Cinacalcet er svokallað kalkhermandi lyf og er notað til meðferðar við sjúkdómum sem stafa af kalkkirtilsvandamálum. Kalkkirtlar líkamans mynda hormón sem nefnist kalkvaki. Þetta hormón stjórnar magni kalks og fosfórs í blóði þannig að starfsemi beina, hjarta, vöðva og tauga sé eðlileg. Nýrnasjúkdómar geta raskað jafnvægi kalks og fosfórs í líkamanum með þeim afleiðingum að kalkkirtlarnir mynda of mikið af kalkvaka. Afleiðingar þess geta verið beinsjúkdómar sem og hjarta- og æðasjúkdómar. Cinacalcet stjórnar magni kalkvaka, kalks og fosfórs í líkamanum.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Upphafsskammtur, við afleiddri kalkvakaofseytingu: 30 mg einu sinni á dag. Upphafsskammtur, við krabbameini í kalkkirtli: 30 mg 2svar á dag. Skammtastærðir eru stilltar á 2-4ra vikna fresti þar til viðhaldsskammti er náð. Töflurnar takist inn með mat eða eftir máltíð. Töflurnar gleypist heilar. Má ekki skipta þeim.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Nokkrar klst.
Verkunartími:
U.þ.b. 24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal tafarlaust hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
Hugsanleg einkenni ofskömmtunar geta verið dofi eða náladofi í kringum munn, vöðvaverkir eða sinadráttur og krampar.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Blóðsýni eru tekin reglulega til að fylgjast með virkni lyfsins.
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | ||
---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Krampar | ![]() |
![]() |
![]() |
|||
Kviðverkir, ógleði, uppköst | ![]() |
![]() |
||||
Lystarleysi | ![]() |
![]() |
||||
Náladofi í kringum munn | ![]() |
![]() |
![]() |
|||
Ógleði og uppköst | ![]() |
![]() |
||||
Sinadráttur og krampi | ![]() |
![]() |
![]() |
|||
Sundl, náladofi | ![]() |
![]() |
||||
Útbrot | ![]() |
![]() |
![]() |
|||
Vöðvaverkir, þróttleysi | ![]() |
![]() |
![]() |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Advagraf
- Advagraf (Lyfjaver)
- Amitriptylin Abcur
- Anafranil
- Bloxazoc
- Brintellix
- Candizol
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Dailiport
- Diflucan
- Flecainid STADA (Afskráð sept 2020)
- Fluconazol Krka
- Fluconazol ratiopharm (afskráð des 2022)
- Fungyn
- Isoptin Retard
- Klacid
- Klomipramin Mylan
- Logimax
- Logimax forte
- Metoprolin (Afskáð feb 2023)
- Metoprolol Alvogen
- Metoprololsuccinat Hexal
- Modigraf
- Noritren
- Prograf
- Rimactan
- Seloken
- Seloken ZOC
- Sporanox
- Tambocor
- Tamoxifen Mylan
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Veraloc Retard
- Vfend
- Voriconazole Accord
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir fengið hjartabilun
- þú reykir
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með flogaveiki eða hafir fengið flog
- þú sért með skerta lifrarstarfsemi
- þú sért með hjartsláttartruflanir
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Hver og einn verður að leggja mat á getu sína til aksturs en aukaverkanir lyfsins gætu skert hæfni til aksturs.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.