Serenity Choice heyrnar­vernd

Almenn fræðsla Heyrn

Phonak býður upp á tvenns konar heyrnarvarnir, annars vegar Universal eða almennar og svo sérsniðnar.

Serenity Choice | almenn heyrnarvernd 

Almennu heyrnarverndina er hægt að fá fyrir:

  • Work
  • Sleep
  • Comfort
  • Hunting
  • Motorsport
  • Music

Sérhver pakkning kemur með þremur stærðum af töppum: Small, Medium og Large, sem hentar mörgum þar sem hlustir eru ekki endilega jafnstórar báðum megin. Aðalatriðið er að velja rétta stærð af tappa og flytja þá síuna sem fylgir í þá stærð. Þegar þú hefur fundið út hvaða stærð af töppum þú þarft getur þú svo notað ál-hylkið sem fylgir undir tappana þína og tekið með þér. Sumir þurfa kannski ekki sömu stærðina í eyrun og það er bara í fínu lagi. Mikilvægt er að prófa sig áfram og átta sig á hvort stærðin henti þér.

167079170_4367638796598432_5647962321541136373_nFyrir þá sem þurfa er hægt að sérpanta Extra Large stærð. Margir eiga erfitt með að nota "one-size-fits all" eyrnatappa og það er því frábært að þeir komi í þremur stærðum – fólk getur þá valið og fundið út hvað hentar.

Eitt lykilatriði við aukin gæði sem viðskiptavinur fær með Serenity Choice fram yfir aðra heyrnatappa sem við seljum er fullvissan um að tapparnir eru líklegri til að passa. Þá tryggir loftunin með síunum einnig betra eyrnaheilbrigði og minnkar líkur á sveppasýkingu eða öðrum fylgikvillum langtíma heyrnatappanotkunar.

Serenity Choice almennu eyrnatapparnir kosta frá 6.900 - 7.900 kr. Smelltu hér til að skoða í netverslun

Serenity Choice Plus | sérsniðin heyrnarvernd

Sérsniðna heyrnarverndin frá Serenty hentar þeim sem þurfa t.d. að passa upp á daglega heyrnarvernd í starfi eða einkalífi. Hluti af hlust og ytra eyra er skannað með þrívíddarskanna og kannað er hvaða heyrnarvernd hentar.

Hægt er að velja um akrýl- eða sílíkon heyrnarvernd, hvort hún þurfi að fylla út í eyrað eða hafa hana smærri. Einnig er hægt að velja um margvíslega liti. Það góða við þessa heyrnarvernd er að hægt er að kaupa síur eftir hljóðaðstæðum eða hávaðategund, allt eftir því hvað hentar þér*.

10167701_1693739549798

Einu sérsmíðuðu heyrnarvarnirnar sem ekki er hægt að breyta og skipta síum í eru: Sund- og svefntappar. Svefntapparnir eru heil skel án síu, og eru þeir úr mjúku sílikoni. Sundtapparnir eru úr flotefni með síu sem gerir notandanum kleift að heyra betur umhverfishljóð á sama tíma og eyrun eru varin fyrir vatni. Með síunni í sundtappanum verður dempunin ekki eins mikil og með öðrum sundtöppum án síu. Notandinn upplifir mun meira umhverfið á sama tíma og hann verndar eyrun fyrir vatni. Sérsmíðaðir sund- eða svefntappar eru líka ódýrari en þeir tappar sem hægt er að breyta síunum í.

Með því að eiga sérsmíðaða heyrnarvernd getur þú bætt við síum fyrir: tónlist, skotveiði, mótorsport, vinnu, almenn þægindi og flug.

  • Music / tónlist: Kjörin fyrir þá sem vinna í tónlist eða sækja tónlistarviðburði.
  • Work / vinna: Fyrir einstaklinga sem vinna í háværu umhverfi eða nota hávær verkfæri. Hentar vel í verksmiðjum, á byggingarsvæðum og þess háttar.
  • Shooting & Hunting / skotveiðar: Dregur úr hávaðatoppum sem geta skapast við skotveiðar.
  • Motorsports / mótorsport: Vernda fyrir véla- og vegahljóðum.
  • Fly / flug: Aukin þægindi í flugi. Dempun á hávaða í farþegarými og kemur á betra jafnvægi á loftþrýstingi við flugtak/lendingu.
  • Comfort / almenn þægindi: Hentar fyrir almenna notkun, t.d. opin skrifstofurými og þá sem vilja einbeita sér án þess að missa sambandið of mikið við umheiminn. Lækkar um 10 dB
  • Sleep / svefn: engin sía til að tryggja aukin þægindi í svefni. Sílikon-tappinn veitir lækkun um 24 dB. Hentar vel fyrir þá sem eiga maka sem hrýtur, og þá sem eiga erfitt með að sofna í nýjum aðstæðum og eru viðkvæmir fyrir mjög truflandi umhverfishljóðum.
  • Swim / Sund: 5 dB lækkun, einstaklingur heyrir mun betur en með hefðbundnum sundtöppum sem loka fyrir loftun og möguleika hljóðs að komast að hlust.

Við kaup á sérsmíðaðri heyrnarvernd er mikilvægt að veita upplýsingar um hversu lengi, hversu hátt og hversu oft viðkomandi dvelur í háværum aðstæðum.

Tannlæknir sem kannski notar daglega háværan bor upplifir ekki hávaðasamt umhverfi öllu jöfnu. En þegar horft er á heildarmyndina þá snýst þetta um allar þær mínútur sem safnast saman yfir daginn, alla dagana og hávaðastigið sem borinn veldur. Við skulum hafa í huga að bílflaut er sirka 85 dB og tannlæknar vinna með tæki sem eru á bilinu 60-99 dB.

Sérsmíðuð heyrnarvernd er sniðin að þörfum hvers og eins og með síum sem henta er auðvelt að stjórna hversu mikla dempun heyrnarverndin veitir.

Heyrnartap er óafturkræft. Við þurfum að vernda það sem við eigum.
Sérsmíðuð heyrnarvernd veitir viðkomandi fullvissu um að eyrnatapparnir passi og til lengri tíma litið þá er betri ending á sérsmíðuðum töppum. Venjulegir eyrnatappar þola minna álag en tappar sem eru smíðaðir sérstaklega fyrir eyrun. Þessir venjulegu eyrnatappar verða fyrir meira togi og hnjaski þegar þeir eru settir í og teknir úr eyrum.

Þú tekur eftir umhverfi þínu og heyrir talað mál án þess að eiga á hættu að ofbjóða heyrninni með þeim tónum og hljóðum sem gætu skaðað heyrn þína. Síurnar tryggja að loftun eigi sér stað og að þú getir notað heyrnarverndina lengur án þess að upplifa hellutilfinningu.

*Síuskipti eiga ekki við um sund- eða svefntappa.

Sérsniðnu eyrnatapparnir frá Serenity Choice Plus kosta frá 25.000 - 45.000 kr. Smelltu hér til að skoða í netverslun

Bókaðu tíma í heyrnavernd hér


046fcdb2-57fd-49c0-bfba-f10482ca337f