Omeprazol Sandoz
Lyf við sársjúkdómi | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf/Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Ómeprazól
Markaðsleyfishafi: Sandoz | Skráð: 1. október, 2015
Ómeprazól, virka efnið í lyfinu, dregur úr myndun á magasýru. Það er notað við sársjúkdómi í maga og skeifugörn, og líka við bólgu í vélinda vegna bakflæðis magasýru. Það er ennfremur notað, ásamt sýklalyfjum, við sýkingu af völdum bakteríunnar Helicobacter pylori. Ef ekki tekst að uppræta Helicobacter-sýkingu veldur hún endurteknum magasárum, og það þarf bæði sýklalyf og lyf sem minnka magasýruframleiðslu til að vinna á henni. Ómeprazól hindrar seyti magasýru úr sýrumyndandi frumum. Með þessum hætti dregur lyfið úr framleiðslu magasýrunnar. Aukaverkanir lyfsins eru fátíðar, og fæstar þeirra eru alvarlegar.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Magasýruþolin hörð hylki til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
10-40 mg á dag í 1-2 skömmtum. Hylkin gleypist heil með vatnsglasi. Má hvorki tyggja hylkin né mylja.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrifa gætir innan 2ja klst. Full áhrif nást innan 5 daga.
Verkunartími:
Um 24 klst. eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Einkenni sjúkdómsins geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Fullur bati næst gjarnan innan 2-4 vikna.
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir lyfsins eru óþægindi í meltingarvegi sem koma fyrir hjá 1-3% þeirra sem taka lyfið. Ef lyfið er tekið samtímis sýklalyfjum er tíðni aukaverkana hærri.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | ||
---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Gula | ![]() |
![]() |
||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | ![]() |
![]() |
![]() |
|||
Höfuðverkur | ![]() |
![]() |
||||
Kviðverkir og vindverkir | ![]() |
![]() |
||||
Niðurgangur, hægðatregða | ![]() |
![]() |
||||
Ógleði og uppköst | ![]() |
![]() |
||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Milliverkanir
Náttúrulyfin Jóhannesarjurt og ginkgo geta dregið úr virkni lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Advagraf
- Advagraf (Lyfjaver)
- Alprazolam Krka
- Alprazolam WH (hét áður Alprazolam Mylan)
- Anafranil
- Antabus
- Aspendos
- Buccolam
- Candizol
- Cipralex
- Cipramil
- Citalopram STADA
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Clindamycin EQL Pharma
- Clopidogrel Krka
- Dailiport
- Dalacin
- Diflucan
- Doxycyklin EQL Pharma
- Doxylin
- Esbriet
- Escitalopram Bluefish
- Escitalopram STADA
- Esopram
- Fluconazol Krka
- Fluconazol ratiopharm (afskráð des 2022)
- Fungyn
- Gentamicin B. Braun
- Grepid
- Ikervis
- Klacid
- Klomipramin Mylan
- Modafinil Bluefish
- Modigraf
- Modiodal
- Oracea
- Oropram
- Prograf
- Sandimmun Neoral
- Selincro
- Sporanox
- Stesolid
- Tafil
- Tafil Retard
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Topimax
- Topiramat Actavis
- Topiramate Alvogen
- Vfend
- Voriconazole Accord
- Warfarin Teva
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með skerta lifrarstarfsemi
Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Minni skammtar eru notaðir.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Getur ert magaslímhúð. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.