Augndropar

Augnsjúkdómar Sjón og heyrn

Augnlæknir benti mér á augndropana Hylo-comod. Ég er ekki að finna neitt um þá hjá ykkur. Þessa dropa á ég að nota v/þurrks í augum og hvarmabólgu. Getur þú bent mér á einhverja sambærilega augndropa sem ég get fengið hjá ykkur í Lyfju? :)

Hylo comod eru til í flestum Lyfju og Apóteks apótekum. Ef þú ert óviss hvort þeir séu til, sem væri helst í minni apótekunum, er alltaf gott að hringja á undan sér og spyrja. 

Ástæðan fyrir því að þeir eru ekki inni á Lyfjabokin.is eru vegna þess að þeir eru ekki skráðir sem lyf.