Frauðvörtur

Húðvandamál

Mig langaði að vita hvort væri til eitthvað krem eða lyf hjá ykkur sem virkar gegn frauðvörtum eða hvort þurfi að leita til læknis til að losna við slíkt? Ef svo er, er þá hægt að fara á vaktina eða þarf maður að panta tíma hjá sérfræðingi?

Ég mæli með því að panta tíma hjá lækni á næstu heilsugæslustöð eða heimilislækni. Hann myndi síðan vísa þér áfram á sérfræðing í húðsjúkdómum eða hefja meðferð sjálfur eftir þörfum. Hér er góð umfjöllun frá húðlæknastöðinni um frauðvörtur.